Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2006, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2006, Qupperneq 17
DV Sport FÖSTUDACUR 17. FEBRÚAR 2006 17 Veikindi í her- búðum Grind- víkinga Hvorki Friðrik Ingi Rún- arsson, þjálfari Grindavíkur eða fyrirliðinn Páll Axel Vilbergsson komu á blaðamanna- fund sem KKÍ hélt til kynningar á bikarúr- slitaleikjunum sem fram fara um næstu helgi. Báðir lágu þeir félagar heima með flensu en flensufaraldur hefur truflað undirbúning karla- og kvennaliðs Grindavíkur sem fara nú í fyrsta sinn bæði saman í Laugardals- höllina. Pistons búnir að gefast upp á Milicic Detroit Pistons í NBA- deildinni í körfubolta lét í gær Serbann Darko Milicic fara frá lið- inu. Milicic fór ásamt Carlos Arroyo til Orlando Magic í skiptum fyrir valrétt í fyrstu umferð í nýliðaval- inu og Kelvin Cato. Detroit valdi Milicic í nýliðavalinu 2003 og á undan mönnum eins og Carmelo Anthony, Chris Bosh og Dwyane Wade sem hafa ólíkt hon- um gert góða hluti í deild- inni. Milicic hefur hins veg- ar aðeins spilað samtals í 553 mínútur þessi þrjú tímabil sín í Detroit. Henke samdi við Helsing- borg Sænski framherjinn Henrik Larsson er búinn að gera 18 mán- aða samning við Helsing- borg en hann hafði áður tilkynnt að hann ætl- aði að spila í Svíþjóð á næsta tímabili sem hefur undanfarin tvö tímabil leikið með Barcelona á Spáni valdi Helsingborg fram yfir önnur lið þar sem það kem- ur frá hans heimabæ. „Ég er Helsingborgarmaður og hef verið það alla tíð. Það kom ekkert annað lið til greina" sagði Larsson í gær. RealMadrid ríkasta félag í heimi Spænska félagið Real Ma- drid er ríkasta félag í heimi og hefur þar með skotið enska liðinu Manchester United aftur fyrir sig. Real Madrid þénaði 186,2 miiljón- ir punda á tímabilinu 2004- 2005 en tekjur Manchester United hljóðuðu upp á 166,4 milljónir punda og minnk- uðu um 5 milljónir punda milli tímabila. Bæði Chelsea (5.) ogArsenal (10.) lækkuðu sig á listanum en Liverpool (8.) og Everton (18.) eru í sókn. Haukamaðurinn Andri Stefan Guðrúnarson átti stórleik þegar Haukar unnu fimm marka sigur á Valsmönnum í einum af úrslitaleikjum íslandsmóts karla. Haukarnir hafa unnið þrjá fyrstu leiki sína eftir EM-fríið og leik- stjórnandi Haukanna er með skýringuna á hreinu. Leikur upp a hu (mörk) hjú Andra Steían ~ Andri Stefan fór fyrir sínum mönnum í Haukum í 33-28 sigri á Valsmönnum í toppslag DHL-deildar karla í fyrrakvöld. Andri skoraði 10 mörk í leiknum líkt og Árni Þór Sigtryggsson og stjórnaði auk þess sóknarleik Haukanna af stakri snilld. Andri hefur orðið íslandsmeistari með Haukaliðinu þrjú ár í röð en það reynir enn meira á Andra en undanfarin ár enda missti Haukaliðið landsliðsmennina Ásgeir Örn Hallgrímsson, Vigni Svavarsson og Þóri Ólafsson fyrir tímabilið. Þrátt fyrir að vera aðeins 22 ára gamall hefur Andri sýnt mikla leiðtogahæfileika í vetur; Haukaliðið er komið í bikarúrslitaleikinn í fyrsta sinn í fjögur ár og er einnig í hörkukeppni við Fram og Val um ís- landsmeistaratitilinn. „Þetta var frábær sigur og ég er ótrúlega ánægður með þennan leik hjá okkur," sagði Andri eftir sigurinn á Val. „Það var ekkert kæruleysi þótt við höfðum tryggt okkur sæti í bikar- úrslitaleiknum í síðasta leik," segir Andri en eftir hann eru Haukam- ir einir í öðru sætinu, stigi á eftir toppliði Fram og tveimur stig- um á undan Valsmönnum sem þeir skildu eftir í 3. sætinu. „Við verðum að treysta á að önnur lið nái stigi af Fram en við ætlum að ein- beita okkur að því að vinna okkar leiki. Ég held að ef að við vinnum alla leiki okkar eftir áramót verðum við meistarar. Mér finnst við eiga þægilegri leiki eftir en það getur aUt gerst í þessu. Við töpuðum fyrir Aftureldingu og þess vegna erum við á eftir þeim núna," segir Andri og bætir við „Fram á vonandi eftir að misstíga sig ef ekki þá er það bara vel gert hjá þeim og þá eiga þeir ís- landsmeistaratitilinn skilinn," en Haukamir em á eftir sínum fjórða íslandsmeistaratitli í röð og þeim sjötta á aðeins sjö árum. Andri hefur þegar unnið titilinn fjórum sinnum þrátt fyrir að vera aðeins nýorðinn 22 ára gamall. Skoruðu saman 16 mörk með langskotum Andri og Ámi Þór Sigtryggsson skomðu báðir tíu mörk í sigur- leiknum gegn Val á miðvikudags- kvöldið; þar af vom 16 þeirra með langskotum og ekkert þeirra úr víti. Andri skoraði sín 10 mörk úr 13 skotum en Ámi þurftu 17 skot. „í fyrstu tveimur leikjunum vomm við að dreifa mörkunum í liðinu frekar jafnt en í þessum leik var allt inni hjá okkur Áma og við 4 hugsuðum sem svo að af hverju ættum við ekki að halda áfram að skjóta. Stundum er þetta bara svona að það dettur allt inn hjá manni og ég skoraði til dæmis eitt mark nærri því frá miðju," sagði Andri um frammistöðuna en umrætt mark (af um 15 metra færi) var lokamark fyrri hálfleiksins og færði Haukunum sex marka forystu í leikhléi. Valsmenn náðu að minnka muninn í eitt mark en komust ekki lengra og Haukamir kláruðu leikinn í lokin. Æfingarnar í fríinu að skila sér ' „Ég er búinn að vera í meistara- flokknum í einhver sex ár og ég held að við höfum aldrei æft eins vel og við gerðum núna. Kannski þurftum við líka meira á því að halda nuna en síðustu ár. Þetta er líka skila sér í þessum þremur leikjum sem við höfum unnið alla ömgglega á móti Fylki, Fram og Val sem em efstu lið- in í deildinni," segir Andri um hvað Haukamir gerðu í EM-fríinu en liðið tapaði síðasta leik sínum fyrir fríið með sjö mörkum gegn toppliði Fram en vann Framliðið síðan í undanúrslitum bikarsins með þremur mörkum um síðustu helgi. ooj@dv.is . Sex mörk með langskot- um Andri Stefan skoraði sex af tfu mörkum sínum gegn Valmeð langskotum en hin fjögur komu eftir gegn- umbrot. DV-mynd Stefán. Islenski landsliðsmarkvörðurinn í handbolta hefur gert samning við Tus-N-Lubbecke Birkir Ivar á leiðinni í þýska handboltann næsta haust «> > * Landsliðsmarkvörðurinn Birkir ívar Guðmundsson hefur gert tveggja ára samning við þýska liðið Tus-N-Lubbecke en með því leikur einmitt Þórir Ólafsson sem áður lék með Haukunum. Birkir ívar ætlar að klára tímabilið með Haukum en spilar í þýsku Bundesligunni frá og með næsta hausti. „Þetta verður mjög gaman og vonandi nær maður að bæta sig. Þetta er mikil áskorun og ég er mjög spenntur fyrir því að vita hvort maður hafi eitthvað að gera í bestu deild í heimi," segir Birkir ívar sem vakti athygli Þjóðverjarana á Evrópumótinu í Sviss á dögunum. „Þeir komu með fyrirspurn til Hauka fyrir mótið, sá síðan nokkra leiki á EM og buðu mér samning eftir mót- ið," sagði Birkir ívar. „Aðalmark- vörður liðsins, Nandor Fazekas, er að fara til Gummersbach á næsta tímabili og eftir er markvörður sem heitir Torsten Friedrich. Hann var áður hjá Magdeburg og ég verð væntanlega að skiptast á við hann að standa í markinu. Ég stefni samt á það að spila svona 60% til 70% af leikjunum," segir Birkir ívar sem hefur leikið sérstaklega vel með Haukunum í vetur. „Ég hef alltaf sagt að ég væri til að prófa þetta aftur ef ég fengi sóma- samlegt tilboð. Ég er nokkuð ánægður með þetta tilboð og ákvað að skella mér á þetta. I dag er maður að vinna fullan vinnudag og er að mæta þreyttur á æfingar og það er viðbúið að maður bæti sig eitthvað þegar maður getur eytt allri orkunni í handboltann," segir Birkir ívar sem hefur ekki enn skoðað aðstæður en býst við að gera það á næstu vikum. „Ég ætla að byrja á því að vera úti í þessi tvö ár sem samningurinn nær yfir en síðan verður mað- ur bara að sjá til hvað gerist í framhaldinu af því,“ sagði Birkir ívar sem er handhafi fjórða íslandsmeistaratitlisins í röð með félögum sínum í Haukum. Markvörður í fremstu röð Birkir ivar Guðmundsson hefur verið einn afbestu leikmönnum DHL-deildar karla i vetur. DV-mynd Heiða

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.