Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2006, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2006, Side 30
30 FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2006 Síöast en ekki síst DV Siggi Stormur í Idol Einn ástsælasti veðurfræð- ingur landsins, Sigurður Þ. Ragnarsson á NFS, syngur í Idoli starfsmannafélags 365 miðla á veitingastað við Gull- inbrú í kvöld. Sigurður er van- ur söngvari og hefur sungið í þremur kórum til þessa: Flensborgarkórnum og kirkjukórunum í Hafnarfirði og á Selfossi. „Ég ætla annað hvort að syngja New York, New York eða Singing in the Rain. Líklega vel ég síðara lagið þar sem það á betur við týpuna sem ég er," segir Sig- Ha? [ Sigurður Þ. Ragnarsson Ýmis- legt til lista lagt. Hér ekurhann strætó. urður sem hlakkar til kvölds- ins líkt og aðrir sem þátt taka. Sigurður hefur ekki áður sungið í Idol-keppni en hann hefur sungið í karókí: „Það var þegar ég fór í góð- um hóp inn á karókíbar við Strikið í Kaupmannahöfn. Þar fór fólk að syngja og fyrr en varði var ég kominn upp á svið og söng einmitt New York, New York við glimrandi undir- tektir," segir Sigurður sem auk söngsins er vel fær á mörg hljóðfæri og leikur jöfnum höndum á orgel, harmonikku og munnhörpu. Hvað veist þú um Svani 1. Hvert er latneska heiti svana sem verpa á íslandi? 2. Af hverju eru sumir svanir svartir? 3. Hvaða ætt tilheyra svanir? 4. Hvert er annað algengt nafn yfir svani? 5. Hvernig eru ungar svana á litinn? Svör neðst á síðunni Hvað segir mamma? „Hann er alveg frábær drengur að öllu leyti, heiðarlegurog duglegur," segirMaría Sigriður Guð- röðardóttir, móðirHall- dórs Halldórs- sonar, bæjar- stjóra ísa- fjarðarkaup- staðar.„Sem barn var hann ófeiminn og vildi alltaf stjórna systkinum sinum en hann var elst- ur. Hann var skemmtilegur og skýr krakki og ég sá strax að hann bjó yfir forystu- hæfileikum. Hann býryfírmiklu jafnaðar- geði og á gott með að umgangast fólk. Ég hefalltaf verið mjög stolt afhonum. “ Halldór Halldórsson er fæddur 25. júlí 1964. Hann hefur starfað á sjó, rekið bókhaldsþjónustu og starfað f bæjar- nefnd Grindavíkur. Undanfarin tæp 8 ár hefur hann gegnt embætti bæjar- stjóra ísafjarðarkaupstaðar. Halldór vann nýlega mikinn sigur í prófkjöri Sjálfstæðlsflokkslns á Isafirði til kom- andi bæjarstjórnarkosninga. GOTT hjá Bjarna Guðjónssyni að setja stefnuna jafnvel heim til Islands og glæða þá knattspyrnusumarið lifi. 1. Cygnus cygnus islandicus. 2. Vegna litarefnisins melaníns sem þeir hafa í líkamanum. 3. Ætt andfugla. 4. Álft. 5. Gráir. Bart og Baltasar bítast Engu Grapevíne hent, Bart segist sekur Á miðvikudag birtist í Frétta- blaðinu frásögn af meintu reiðiskasti Baltasars Kormáks leik- stjóra á Kaffibarnum, sem hann á hlut í. Greint var frá því að Baltasar hefði hent út öllum eintökum af tímaritinu Grapevine af skemmti- staðnum vegna þess að blaðið birti slæma umfjöllun um kvikmynd hans, A Little Trip to Heaven. í gær bar Fréttablaðið svo fréttina til baka. Sagt var að Bart Cameron, ristjóri Grapevine, hefði átt upptök- in að sögunni með því að senda tölvupóst til Fréttablaðsins þar sem hann sagði frá hinu meinta reiðiskasti. DV hafði samband við Bart sjálf- an og spurði hann út í málið: „Þakka þér fyrir að hringja, það er allavega meira en Fréttablaðið gerði," segir Bart. Það kom honum í opna skjöldu að umræddur tölvupóstur yrði fréttamatur. „Ég sendi vinkonu minni sem vinnur á Fréttablaðinu þennan póst og bjóst ekki við því að hann yrði notaður sem heimild í frétt. Eg hélt að Fréttablaðið hefði heyrt sömu sögu og ég, að Baltasar hefði hent Grapevine út af Kaffi- barnum, og lét hana fá tilvitnanir sem verða í Grapevine." Skllur þetta ekki Baltasar Kormákurskilur ekkert i þessu máli. Hann segir að umrætt tölu- blað Grapevine hafí ekki borist á Kaffíbarinn. Voru þetta mistök? „Já, ég tek fulla ábyrgð á þessu máli. Mér datt aldrei í hug að þetta yrði frétt og þetta voru bara mistök af minni hálfu. Manneskjan sem ég sendi póstinn var ekki sú sama og skrifaði fréttina. Mér finnst leiðin- legt að pósturinn sé kominn til annarra og ljóst að ég get ekki sent þessari manneskju póst aftur.“ Sástu Baltasar henda Grapevine út? „Nei, ekki persónulega. Ég myndi líka aldrei skrifa frétt um það." Baltasar sjálfur kom af fjöllum þegar fréttin var borin undir hann. „Þetta er bara þvæla. Ég veit ekkert hvaðan þetta kemur. Ég veit ekki Segist sekur Bart Cameron, ritstjóri Grapevine, segist vera sekur i þessari deilu. Hann sendi vinkonu sinni á Fréttabiaðinu rafpóst og segist ekki hafa dottið í hug að hann yrði not- aður sem heimiid i frétt. hvort að maðurinn hafi verið að reyna að auglýsa blaðið sitt eða hvað. Grapevine hefur ekki einu sinni komið á Kaffibarinn og því ekki hægt að henda því út. Þessi dómur var ekki einu sinni það slæmur, ég skil þetta mál bara ekki. Mönnum getur fundist það sem þeir vilja um kvikmyndirnar mínar en ég vil bara fyrst og fremst bera af mér lygar," sagði Baltasar. kjartan@dv.is Söng dúett með prinsessunni Þessi mynd er tekin í gamla Dags- ljósinu," segir Páll Óskar Hjálmtýs- son tóniistarmaður en gamla myndin er tekin af honum og Leoncie fýrir tíu ámm síðan, í febrúar 1996. Þá tóku þau lagið Hold Me In YourArms eftir Leoncie. „Þetta er dúett sem Leoncie samdi með mig í huga," segir Páll. Lagið fór á plötuna Love Message From Over- seas, sem kom ekld út fyrr en nokkrum ámm síðar. „Ég heyrði lag- ið aftur um daginn og fannst það frá- bært," segir Páll Óskar sérlega stoltur. Leoncie bauð honum að syngja með sér því hann var eini plötu- snúðurinn sem spil- aði plötumar henn- ar um 1991. Þá var hann með þáttinn Sætt og sóðalegt á Aðal- stöðinni sálugu. Páll segir að hann hafi fengið blóm og konfekt í kjölfarið frá Leoncie og bætir við að hún sé mjög góður vinur vina sinna. „Maður saknar Leoncie því það vant- ar fólk með skoðanir í þjóðfélagið." Páll Óskar og Leoncie Sungu Hold Me In YourArms eftirLeoncie i Dagsljósi fyrirtiu árum siðan. Lárétt: 1 gagnslaus,4 fjötrar, 7 fálki, 8 spildu, 10 druna, 12 stækkuðu, 13 kvæði, 14 tré, 15 gála, 16 sefa, 18 hljómur, 21 bitlaus, 22 verkfæri, 23 gort. Lóðrétt: 1 kverk, 2 aldur, 3 smjaður,4 djarfur, 5 fugl, 6 ferðalag, 9 svardagi, 11 ágengur, 16 klæðnaður, 17 beiðni, 19 gruna,20 höfða. Lausn á krossgátu 'dpu oz 'Bjo 61 'ijsp L\ ‘JOj 9i ‘uuijá n ‘mQia 6 ‘Jnj 9 ‘ujo g ‘jojsunSnq p ‘ifBSjnSBj g ‘iAæ z ‘Jsp I :jjpJQOj 'dnej ez ‘pjæj zz ‘Jpíjs \z 'uuoj ei ‘Bpjj 91 ‘sæS gj ‘Qiaui n ‘joqp ET ‘n>fn z\ ‘jAuS 01 'Siaj 8 ‘Jn|BA l ‘jjot| L 'jæqp j :jjpjpi morgun

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.