Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2006, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2006, Page 31
éDV Síðast en ekki síst FÖSTUDACUR 17. FEBRÚAR 2006 31 Óttastu fuglaflensuna? Finnst eins og það sé veríð að gera ofmikið úrþessu „Nei, ég geri það ekki. Mér finnst eins og það sé verið að gera ofmikið úrþessu." Halldór Brynjar Halldórsson nemi. 5|Pp|il| M !** „Veitþað ekki, ekkertpæití því." Nikulás Ósk- arsson af- greiðslumað- „Égóttast hana ekki. Mér finnst vanda- málið bara vera svo fjarlægt." Margrét Guð- mundsdóttir, vaktstjóri hjá Actavis. „Ég nenni bara ekkert að pæla í því." Ragnheiður Martha Jó- hannesdóttir „Nei, ekkert svakalega. Eigin- lega óttast ég hana alls ekki því ég efast um að hún komi hing- að." Helga Margrét Friðriksdóttir Fuglaflensan er komin til Norður-Evrópu og nálgast áningarstað íslenskra far- fugla á Bretlandseyjum. Fæstir Islendingar hafa þó áhyggjur af faraldrinum enn sem komið er, þrátt fyrir skæðar afleiðingar sem gætu fylgt honum. Góðir bandamenn? „Fjölmiðlar um allan heim birtu í dag nýjar myndir af pyntingum sem bandarískir her- menn beittu fanga í Abu Ghraib fangelsinu í Bagdad í írak. Myndirnar lýsa viðbjóðs- legu atferli. Þvi reynir enginn að neita. Ekki einu sinni talsmaður Hvíta hússins í Washington. Hann lét þess sérstaklega getið í yfir- lýsingu í dag að sérlega „óheppilegt" væri að mynd- irnar birtust núna, í þvi and- rúmslofti sem hefði skapast í samskiptum vestrænna ríkja við arabaríkin og átti þá væntan- lega við þá reiðiöldu sem risið hefur í kjölfar myndbirtinga Jyllandsposten. Já, það er nefnilega það, óheppilegur tími! Er ekki alltaf réttur tími að upplýsa um grimmdarverk? Talsmaður Hvita hússins mælir fyrir hönd ríkisstjórnar sem seg- ist málssvari „vestrænna gilda“ og telur sig þess umkomna að rétta yfir böðlum á borð við Saddam Husseín. Slík réttar- höld verða aldrei trúverðug á meðan réttlætið er ekki látið ná til þeirra sem bera ábyrgð á grimmdarverkum Bandaríkja- manna, Breta og annarra innrás- arherja í írak og eru nú að birtast okkur með myndum af ofbeldis- verkum breskra hermanna og pyntingum Bandarikjamanna í Abu Ghraib. Hér er ég að sjálf- sögðu að visa í æðstu ráðamenn þessara rikja, Bush og Blaix og alla þá sem eru í vitorði með þeim. Myndirnar sem í vikunni hafa birst of ofbeldi bandariskra og breskra hermanna sýna aðeins toppinn á ísjakanum. Hér á síð- unni, í blaðagreinum og í ræðum á Alþingi hef ég borið aðferðir bandaríska hersins saman við kúgunaraðferðir nasista fyrir miðja síðustu öld. Þar má til dæm- is nefna handahófskennd fjöldamorð Bandaríkjahers í írösku borginni Fallujah. Ég minnist þess að fréttir af ódæðis- verkunum í Fallu- jah þóttu einnig birtast á mjög „óheppilegum tíma“. í vikunni birtu fjölmiðlar viða um heim fréttir af rannsóknarskýrslu sem er í burðarliðnum um pynt- ingar í bandarísku herstöðinni í Guantanomó á Kúbu. Hún er unn- in af fimm sérfræðingum Sam- einuðu þjóðanna fyrir Mann- réttindanefnd SÞ. Viðbrögð í Washington hafa að sjálfsögðu verið neikvæð. í fyrsta lagi var reynt að gera skýrsluna ótrúverð- uga með þvi að staðhæfa að nefnd- armenn hefðu afþakkað að heim- sækja Guantanomo fangabúðirn- ar og kynnast þeim af eigin raun. Þetta mun vera rétt. En hitt var ekki látið fylgja sög- unni, að ástæðan fyrir því að skýrsluhöfundar afþökkuðu boðið var sú, að þeir áttu ekki að fá að ræða við fangana! í öðru lagi sögðu talsmenn Bandaríkja- stjórnar að skýrsluhöfundar hefðu gert þau reginmistök að leggja dóm á meðferð fang- anna eins og um væri að ræða hverja aðra fanga. Þetta væru hins vegar stríðsfangar. Um þá ættu að gilda allt aðrar reglur! Svona tala menn , sem halda fólki í pyntingabúðum, án dóms og laga. Svona tala menn, sem vilja striðs- glæpadómstól fyrir alla aðra en sjálfa sig. Svona tala menn, sem ríkisstjórn Islands segir vera helstu banda- menn íslands. Svona tala menn, sem rikisstjórn íslands biður um að vernda okkur fyrir, öllu illu. Hve mörgum íslend- ingum skyldi finnast gott að eiga svona bandamenn? Mín tilfinning er að þeim fari nú óðum fækkandi.“ Ögmundur Jónasson alþingismaður ritar á vef sinn, ogmundur.is fjölmar gar yisindarann soknir hafa verið gerðar « a hópmeð lunum. Dagleg lesa ma gi'einar nar i blöðum Iiferni hóps- um ms Ég hef alltaf mjög gaman af tvennu; gátum og aug- ljósum staðreyndum - mest spennandi er náttúr- lega tengingin þarna á milli. Til að reyna dálít- ið á ofangreinda fullyrðingu, einsog félags- fræðingar segja í bókunum sínum, langar mig að leggja gátu fyrir lesendur DV og bið þá um að senda mér svarið á ljon7@simnet.is. Þetta er sem sé gáta um þjóðfélagshóp - lesendur þurfa bara að nafngreina hópinn og senda svarið á netfangið. Dregið verður úr réttum svörum. Gátan er svona með 17 tilvísunum. 1. Hópurinn er áhættuhópur. 2. Margir hafa lagt hart meðlimum hans að snúa frá villu sinni. 3. Athafnir hópsins eru stranglega bannaðar kirkjum og opinberum stofnunum. 4. Hópmeðlimum hefur stundum verið komið fyrir lokuðum og gluggalausum klefum. 5. Oft er talað um athæfi hópmeðlima sem foræmisgefandi og hættuleg. 6. Hópurinn hefur enn ekki stofnað löggild hagsmunasamtök en hefur þó aðild að lífeyrissjóðum og greiðir skatta. 7. Fjölmargar vísindarannsóknir hafa verið gerðar á hópmeðlimum. 8. Daglega má lesa greinar í blöðum um líferni hópsins. 9. Sagt hefur verið að iðja hópsins dragi úr hættunni á heilabilun. 10. Sagt er að börnum stafi smithætta af fólki sem tilheyrir hópnum. 11. Iðja hópsins hefur verið bönnuð í fjölmörgum löndum. 12. Meðlimir hópsins koma úr öllum stéttum og-"" sumir þeirra eru grænmetisætur. 13. Margir sem tilheyrðu hópnum hafa sagt sig úr félagi við hann og predika nú gegn honum. 14. Djúp rödd kvenna sem tilheyra hópnum þótt afar falleg í djassi og blues og neglur þeirra henta vel í gítarspil. 15. Sagt hefur verið að líf hópmeðlima sé oft styttra en margra annarra þjóðfélagshópa. 16. Hópmeðlimir hafa ekíd þau mannréttindi sem sjálfsögð þykja meðal flestra annarra þjóðfélagshópa. 17. Talið er að margir hópmeðlima muni kjósa Silvíu Nótt á morgun. allari Ifigdís Grímsdóttir Birta er komin út! Mammút Ekki bara ung og efnileg ,j-.ká oúBÍV” . ■ ÖÉÍ W í ", s -rfcvwð ,S f - Í&É / &4 ///, /M ❖ ^ v Hnébuxur fyrir vorið Salat, brauðréttir og fyllingar Öflugasta sjónvarpsdagskráin birlo

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.