Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.02.1982, Side 4

Símablaðið - 01.02.1982, Side 4
KROFUGERÐ OG MEGINTILLÖGUR FÍS Um sérkjarasamning 1. Röðun starfa í launaflokka. F.Í.S. gerir þær kröfur að öll starfsheiti félagsins hækki um 4—6 launaflokka. Einnig að breyt- ingar verði á einstökum starfsheitum m.a. með hliðsjón af nýrri reglugerð um iðnfræðslu. í nýgerðum aðalkjarasamningi er kveðið á um það að við röðun starfa í launaflokka skuli að megin stefnu miðað m.a. við „kjör launþega er vinna við sambærileg störf samkvæmt öðrum kjarasamningum “. Nýlega var lögð fram bráðabirgðaskýrsla launakönnunarnefndar BSRB og ríkisins (hluta- skýrsla). Kemur þar fram að kauphækkanir til iðnaðarmanna og verkstjóra frá júlí 1980 til júlí 1981 hafi verið miklum mun hærri en hjá samsvarandi hópum innan BSRB eða 55—75% ámeðant.d. ll.lfl. BSRB hækkaði aðeins um44%. Þegar borin eru saman lægstu laun iðn- aðarmanna hjá ASÍ og BSRB í þessari skýrslu munar 4 launaflokkum ASÍ í vil og samanburður á launum hæstu iðnaðarmanna sýna að BSRB-menn eru sem svarar 5 launaflokkum neðar en meðallaun sem ríkið greiðir til allra rafvirkja er fá laun skv. töxtum Rafiðnaðarsambandsins. Samanburður sem F.Í.S. hefur gert og fylgir hér með í línuritum staðfestir þennan mikla launamun og jafnvel enn meiri, svo sem eftirfarandi dæmi sýna: a) símsmiðir með 5 ára starf eru í 10. lfl., símvirkjar og símritarar í 11. lfl. en rafiðnaðarmenn á launum sem svara til 18.—20. lfl. og er þá ekki tekið með í reikninginn sér-álög eins og t.d. álag til rafiðnaðarmanna, sem vinna við viðhald á tölvum og gagnavinnsluvélum 10, 20 eða 30% eftir atvikum; b) verkstjóri verkamanna sem tekur laun skv. samningum F.Í.S. og BSRB er í 9. lfl. eftir 5 ára starf á meðan verkstjóri verkamanna hjá Símanum í samskonar starfi á samningum verk- stjórasambaadsins er með laun sem svara til 13. lfl.; c) munur á launum verkstjóra iðnaðarmanna á töxtum verkstjórasambandsins og verkstjórum tæknimanna innan F.Í.S. samsvarar a.m.k. 4—8 launaflokkum, og munurinn er jafnvel enn meiri ef borið er saman við ríkisverksmiðjurnar; d) laun tækniteiknara innan F.Í.S. eru sem svarar 4—6 launaflokkum neðar en laun tækni- teiknara skv. samningi FTT og FFRV. Samanburður launakönnunarnefndar BSRB og ríkisins á launum skrifstofumanna og banka- manna sýnir launamun upp á 21—22% skrifstofumönnuin innan BSRB í óhag, en það samsvarar 5—6 launaflokkum og er þá rétt að undirstrika að skrifstofumenn innan F.Í.S. eru talsvert lægri flokkaðir en meðaltal skrifstofumanna í BSRB. í samningaviðræðum um aðalkjarasamning nú fyrir áramótin gaf fjármálaráðherra ákveðin fyrirheit um leiðréttingu í sérkjarasamningum félaganna á þeim launamun, sem væri á milli félagsmanna BSRB og annarra launþega. Jafnframt kom fram hjá honum að ríkissjóður stæði 2 SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.