Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.02.1982, Page 14

Símablaðið - 01.02.1982, Page 14
Við yUjum lifa eins og annað fólk Það er allt og sumt — hvorki meira né minna. Síðan fyrstí fundur samninganefndar F.Í.S. um yfirstandandi sérkjarasamninga, var haldinn 14. janúar hefur mest öll starfsemi félagsins okkar miðast við það. Með þessu blaði hyggjumst við kynna símafólki stöðuna eins og hún er í kjaramálum, þannig að hver einasti félagsmaður geti metið hana sjálfur. Hverjir ákveða stefnuna? En hver er staðan í dag? í aðalkjarasamningi BSRB og ríkisins fyrir rúmum mánuði síðan var samið um nýtt orða- lag á grein 1.4.1. í aðalkjarasamningi en hún hljóðar nú svona: Við röðun starfa i launaflokka skal að meg- instefnu miða við: — núverandi röðun — kjör laúnþega er vinna við sambærileg störf samkvæmt öðrum kjarasamningum. — kröfur sem gerðar eru til menntunar, ábyrgðar og sérhæfni starfsmanna. Engin starfsmaður skal lækka í launum frá því sem nú er. Það er ekki aðeins að þessi grein sé breytt. Hún markar einnig stefnuna í kröfugerð okkár. Það hefur alltaf verið stefna F.Í.S. að félag- ið færi með samnings- og verkfallsrétt sjálft. Að við gætum komið með sjálfstæðar kröfur og við síðan gert samninga um kaup og kjör eftir að við hefðum metið það sjálf félagsmenn F.Í.S. hvort við vildum búa við það sem biðist eða ekki. Þessu er nú ekki að heilsa. Farvegur- inn er mótaður af stjórnvöldum sem ekki hafa viljað veita okkur sama rétt og öðrum stéttum. Þá er bara að taka aðstæðum og berjast af ein- urð og festu. Svo er það ykkar að meta hvort svo sé og bæta um betur þar sem þurfa þykir. Skýrslan í sérkjarasamningum F.Í.S. og SFR við fjár- málaráðherra í árslok 1980 voru ákvæði um að gera samanburð á kjörum félaganna og annarra. Síðan varð samkomulag um að skipa nefnd þar sem BSRB skipaði 2 fulltrúa i nefnd- ina og fjármálaráðherra 2. Af hálfu ríkisins voru valdir Steingrímur Pálsson, starfsmaður fjármálaráðuneytisins og Guðmundur Karl Jónsson, forstjóri Fríhafnarinnar en af hálfu BSRB þeir Björn Arnórsson, hagfræðingur og Skúli Halldórsson kennari. í byrjun janúar var svo skýrsla þessarar nefndar lögð fram „Bráðabirgðaskýrsla launa- 12 SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.