Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.02.1982, Blaðsíða 15

Símablaðið - 01.02.1982, Blaðsíða 15
könnunarnefndar BSRB og ríkisins“. í skýrslunni kemur m.a. fram mikill launamun- ur á launakjörum iðnaðarmanna er vinna á töxtum sinna félaga hjá ríkinu og launum iðn- aðarmanna ríkisins í 9. eða 10. launaflokki. Það kemur fram í skýrslunni að meðallaun þeirra er vinna skv. taxta Rafiðnaðarsam- bandsins eru hliðstæð 20. lfl. BSRB og raf- virkjar RARIK eru með laun hliðstæð 18. til 19. lfl. BSRB. Það kemur fram að þeir sem taka laun skv. taxta Verkstjórnarsambands ísl. eru með laun er svara til 21. og 22. lfl. BSRB. Þegar borin eru saman laun skrifstofufólks BSRB og bankamanna kemur í ljós að þar er munurinn 21—22% (og enn meiri þegar laun talsímavarða og skrifstofufólks F.Í.S. eru skoðuð). Þessi munur staðfestir það sem talsmenn F.Í.S. hafa haldið fram í umræðu um kjara- mál. Eitt er það í þessari skýrslu sem vekur hvað mest athygli, en það er hið mikla stökk, sem iðnaðar- og verkstjórnarstéttirnar taka fram úr sambærilegum stéttum hjá BSRB milli ár- anna 1980 til 1981. ASÍ hóparnir hækka um 55—75% á meðan 11. lfl. BSRB hækkar um 44%. Það skal tekið fram að laun miðast við 40 st. vinnuviku í skýrslunni. Megum við hafa vonir? Er þá ekki staðan góð með breyttri grein 1.4.1 í aðalkjarasamningi og skýrslan komin fram? — Við skulum vona það. Það er ekki hægt að banna okkur að hafa vonir. Ekki mun standa á okkur í samninganefnd F.Í.S. að vinna að málinu. Við þessar upplýsingar má bæta að niður- stöður kjararannsóknarnefndar ASÍ og VSÍ eru rétt ókomnar (hafa nú reyndar verið það síðan í fyrra). Það hefur fréttst að þær stað- festi þann mikla launamun sem hér hefur verið skýrt frá. Á fundi með samninganefnd BSRB 4. des- ember hafði fjármálaráðherra Ragnar Arnalds góð orð um það að launakjör BSRB yrði að vera í hæfilegu samræmi við það sem er á al- mennum markaði og að þar sem kjörin væru mismunandi þyrftum við að setja okkur að leiðrétta það á ákveðnu tímabili. Við sem vinnum í kjaramálum vitum að hæfilegt samræmi mælist ekki í tugum pró- setna þegar rætt er um laun heldur einingum og að ráðherra á væntanlega við tímabil sem hann hefur ráð á þegar hann talað um tímabil. Þannig er þetta allt jákvætt fyrir okkur þegar við hugsum til leiðréttinga á okkar kjörum. Hér í gamla daga þegar launalög voru og opinberir starfsmenn höfðu einir lífeyrissjóð og veikindafri þá var talið eðlilegt að BSRB- menn hefðu 10% lægri laun en annað launa- fólk. Nú hefur sem betur fer annað launafólk áunnið sér flest þau réttindi sem við höfðum þannig að þessi 10% hljóta að hafa minnkað niður í svo til ekki neitt. (afsakið — ég er ekki með skattgreiðslur opinberra starfsmanna og jreirra sem taka laun á almennum vinnumark- aði inni í myndinni). — Nu er sannanlegur launamismunur 20% og það yfir. — Skýrslur liggja frammi — Fögur orð hafa verið sögð. — Vonir gefnar í atkvæðagreiðslu um aðal- kjarasamning BSRB. SÍMABLAÐII)

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.