Símablaðið - 01.02.1982, Blaðsíða 17
Viðtöl við símamenn
Um kjaramál
Á næstunni munu einstök félög innan BSRB gera svokallaða sér-kjarasamninga við fjár-
málaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs. Símablaðinu þótti forvitnilegt að kanna hug símamanna
um kjaramál almennt og sendi blaðamenn til að kanna málið. Hér á eftir birtast viðtöl blaða-
manna við fulltrúa hinna ýmsu starfshópa Stofnunarinnar.
Óli Gunnarsson, yfirsímritari við Ritsímann í
Reykjavík
Símabl: Hvað finnst þér um kjaramálin í dag?
Oli: Almennt sagt um launakjör opinberra
starfsmanna, þá eru þau í mikilli lægð í dag.
Til þess liggja ýmsar ástæður, svo sem
skerðing vísitölu og einnig rýr eftirtekja í
síðustu samningum.
Símabl: Nú voru samningar BSRB samþykktir
með meiri hluta atkvæða. Álítur þú að fólk
almennt hafi verið ánægt með það sem boð-
ið var?
Óli: Nei, síður en svo. Ég held að þessi niður-
staða atkvæðagreiðslunnar um samningana
endurspegli ekki neina ánægju með kjörin.
Afstaða mjög margra sem léðu samningun-
um jáyrði sitt, mótaðist af verkfallsótta,
þ.e.a.s. fólk er orðið fast í vítahring afborg-
ana og þorir ekki að voga því að rjúfa keðj-
una. Það er svo annað mál, að sé engu vogað
í launaþaráttunni, þá er hætt við að árang-
urinn verði seint viðunandi.
Óli Gunnarsson
Símabl: í hverju er starf þitt fólgið og hvaða
menntunar krefst það?
Óli: Starfsheiti mitt er eftirlitsmaður með sím-
ritun. Grunnmenntun er 2 ára loftskeyta-
skóli og síðan eru tvö námskeið í Póst- og
símaskólanum, um 700 tímar, ef ég man rétt.
Ég starfa á Ritsímanum í Reykjavík við al-
hliða skeytaþjónustu. í þessu starfi er fólgin
afgreiðsla skeyta við útlönd og innanlands-
og telexafgreiðsla ýmis konar og veður-
skeytaþjónusta. Almennt má segja, að starf
þetta krefjist mikillar nákvæmni og einþeit-
ingar. Einnig má benda á, að aðeins einn
maður er á næturvakt hverju sinni og verður
því að ráða fram úr hverju þvi máli sem upp
kann að koma, einn og sér.
Símabl.: í hvaða launaflokki ert þú?
Óli: Ég er í 14 lfl. og hefi starfað hjá Símanum
í tæp 15 ár.
Símabl: Þekkir þú einhvern sem vinnur sam-
bærilegt starf og veistu hvaða laun hann
hefur?
Óli: Allur samanburður er alltaf dálítið erfið-
ur. En vísa má til launa flugumferðarstjóra,
sem eru himinhátt fyrir ofan okkar laun, en
einmitt í þeirri stétt eru margir loftskeyta-
menn. Einnig má benda á, að ríkið semur
við flugumferðarstjóra.
Símabl: I hvaða launaflokki telur þú að þitt
starf ætti að flokkast?
Óli: Að meðaltali þurfa símamenn að hækka
um 5—6 flokka gegnumsneitt. Það eru
óhrekjandi samanburðartölur til fyrir því,
að opinberir starfsmenn hafa dregist langt
aftur úr í launum ef litið er til almenna
launamarkaðarins. En þá kem ég aftur að
því, að til að árangur náist í kjarabaráttunni,
þá geta menn þurft að fórna nokkru um
stundarsakir. Það fæst ekkert fyrirhafnar-
laust og hefir aldrei fengist.
SÍMABLAÐIt)