Símablaðið - 01.02.1982, Qupperneq 18
Mvnd frá Innheimtunni. F.v: Ágústa F. Hafberg, ívar Helgason, Jóhann Guðmundsson, Þór-
unn Tómasdóttir, Elín Gunnarsdóttir, Guðný Hjartardóttir og Kristjana H. Guðmundsdóttir.
Símablaðið hafði tal af starfsfólki Innheimtu Bæjarsímans í Reykjavík og leitaði álits þess á
nýafstöðnum kjarasamningum og launamálunum í dag. Hér fara á eftir nokkur framlög til
umræðnanna:
Við erum öll mjög óánægð með samning-
ana, var samhljóða svar starfsfólksins, en
nokkur ný atriði sem komu fram í samningum
og fólk treysti á að kæmi til framkvæmda,
hafa örugglega stuðlað mjög að samþykkt
samningsins. Þá hefir „jólagjöfin“ svokallaða,
gert sitt til að unga fólkið gaf jáyrði sitt.
Opinberir starfsmenn hafa yfirleitt sterka
þjóðfélagskennd og líta á heill þjóðar sinnar
sem sína eigin. Því vildu margir leggja á sig
auknar byrðar til skamms tíma, ef það mætti
verða þjóðarskútunni til hjálpar. En laun opin-
berra starfsmanna eru í heild það ónóg að fólk
getur ekki tekið á sig meiri byrðar, en það hefir
nú þegar gert.
Fólk áleit líka, að það myndi ná betri kaup-
mætti með samningum, en með því að fara í
verkfall.
Það er vitað mál af fenginni reynslu undan-
farinna ára, að verkföll eru eina málið sem við-
semjendur okkar skilja.
Verkfall hlýtur ætíð að vera neyðarúrræði,
en hvað á að gera ef sanngirnismál nást ekki
fram með samningum?
Nú eru sérkjarasamningar fram undan og
þá hljóta störf okkar og laun hér í Innheimt-
unni að koma til endurmats, vegna breyttra
starfshátta síðustu ár. Starfsfólkið hér er allt
of lágt flokkað, þegar litið er á hin ábyrgðar-
miklu störf sem það hefir undir höndum.
Gjaldkerar Innheimtunnar vildu gjarna fá
þá leiðréttingu, sem þeir áttu að fá samkv.
munnlegu loforði, þegar þeir byrjuðu að borga
út laun árið 1974. Þá er áreiðanlegt að það hef-
ur haft mjög mikil áhrif á kjör okkar, þegar
starfsheitinu gjaldkeri var breytt í féhirði, en
okkar starf gert að starfi skrifstofumanns, en '
ætti að vera féhirðir II.
Samkv. Aðalkjarasamningi er hámark
starfsaldurshækkana 13 ár. Það virðist ekki
sanngjarnt, að fólk sem hefir eytt mestum
hluta starfsævinnar hjá sömu stofnun, eigi
ekki möguleika á launahækkunum í sama
starfi eftir að 13 ára markinu er náð. Þessu
verður að breyta.
Ámi Jóhannsson, starfar á Skrifstofu Bæjar-
símans í Reykjavík.
Símabl.: Hvað finnst þér um nýafstaðna
samninga og kjaramálin í dag?
Árni: Ég varð fyrir miklum vonbrigðum með
samningana í heild, en er þess fullviss, að
16 SÍMABLAÐIÐ
vafaiaust hefðu menn verið harðari og óeft-
irgefanlegri við samningagerð, ef þeir hefðu
ekki borið fullt traust til orðheldni viðsemj-
enda sinna.
Samkv. Aðalkjarasamningi 11. des. 1981,
segir í 6. grein, gr. 1.4.1, að við röðun starfa
í launaflokka skuli miðað við m.a.: