Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.02.1982, Side 21

Símablaðið - 01.02.1982, Side 21
dugar þetta ekki til. Svæðið stækkar og fyr- tækjum fjölgar og ekki hefur mátt fjölga starfsmönnum á undanförnum árum. Það er eðlilega mjög þrýst á okkur af þeim sem við seljum vinnu að hraða verkefnum. Þó starfsmenn séu góðir og vinni langan vinnu- dag dugir það ekki til. Símabl: Nú er talað um að skera niður yfir- vinnu. Ögmundur: Ekki veit ég hvar það á að vera. Það hlýtur að vera einhversstaðar þar sem unnin er atvinnubótavinna. Það er ekki gert hér. Símabl: Hvernig fannst þér útkoman úr samn- ingunum í desembermánuði? Ögmundur: Það var lélegur samningur. Símabl: Hvað telur þú að þurfi að koma til þeirra er vinna svipuð stjórnunarstörf og þú út úr sérkjarasamningunum? Ögmundur: í það minnsta 6 launaflokkar. Örn Sverrisson Starf: Línumaður Laun: Efsta þrep 8. lfl. kr. 6.829.- Símabl: í hverju er þitt starf aðallega fólgið? Örn: Ég starfa við uppsetningu og flutninga á símum í heimahúsum. Símabl: Þegar þarf að flytja síma frá einum stað til annars þarf þá að skrúfa tvær skrúf- ur eins og maður heyrir í „starfslýsingum almennings“? Örn: Þetta er alger misskilningur. Við þurfum að fara í tengihús og tengiskápa í línukerf- inu og tengja þar og mæla línur. Við þurfum að framkvæma slík störf á mörgum stöðum oft á tíðum áður en við komum að því húsi sem tækið er flutt í eða sett upp nýtt. Hinn almenni notandi sér mest lítið af okkar störfum og hefur mjög villandi hugmyndir um það. Símabl: Hvernig lýst þér á nýgerðan aðal- kjarasamning? Örn: Illa. Ég samþykkti hann ekki. Hann full- nægir alls ekki kröfum mínum um það sem mér finnst ég eiga að hafa í laun. Símabl: Hvað telur þú að laun þín eigi að hækka mikið í sérkjarasamningunum? Örn: Um það bil 6 launaflokka til þess að vera Örn Sverrisson eitthvað í líkingu við það sem menn hafa í svipuðum störfum á almennum vinnumark- aði. Símabl: Svo er það ein aukaspurning. Áttu einhverja fyrirvinnu? Örn: Já — konan mín vinnur úti hálfan dag- inn og fær svipað kaup og ég fæ fyrir 8 tíma vinnu. Á teiknistofu Stofnunarinnar hitti blaða- maður Margréti Árnadóttur, fulltrúa, Helgu Gunnarsdóttur yfirteiknara og Bergljótu Sig- fúsdóttur tækniteiknara og spurði þær hvort þær væru ekki ánægðar með launin. Eftir þrí- raddað nei krafði blaðamaður þær um skýr- ingar. Helga: Ég vil í fyrsta lagi geta þess að tækni- teiknari hér byrjar í 8. lfl. og eru laun þar Kr. 6.188,- Eftir 1 ár hækkar hann í 2. þrep sama lfl. eða Kr. 6.564,- Síðan koma smá- vægilegar hækkanir eftir 4 ár og 5 ár eða í lfl. 9.2 og 9.3. Eftir það er engin hækkun fyrr en eftir 15 ára starfsaldur. Þá kemst SÍMABLAÐIÐ 19

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.