Símablaðið - 01.02.1982, Qupperneq 24
Guðrún Björnsdóttir
vinnumarkaði. Það er eins og einhver leynd
hvíli yfir launum þar. Ég þekki stúlkur sem
hafa orðið að skrifa undir þagnarheit varð-
andi laun sín. Þó hefur okkur tekist að draga
upp nokkra mynd af ástandinu. Ef við lít-
um á stóru fyrirtækin fyrst, þá eru kjörin
hjá S.Í.S. sennilega svipuð og hjá bönkun-
um, nema hvað þar er unnið á vöktum, þ.e.
frá kl. 8—13 og 13—19, eða 271/2 tími á
viku. Hjá Eimskip vildi starfsmannastjóri
ekki gefa beinar upplýsingar um laun en
upplýsti þó að laun samkvæmt samningi
BSRB væru töluvert lægri en þeir greiddu.
Sömu sögu er að segja um Flugleiðir.
Ef að við snúum okkur að smærri fyrirtækj-
um þar sem hugsanlega er aðeins ein stúlka
við skráningu, förum við að tala um nokkuð
hærri tölur eða alvörukaup. Ein stúlka fór
héðan til verslunarfyrirtækis og byrjaði þar
á launum sem samsvara 22. lfl. BSRB. Önn-
ur fór til stærra fyrirtækis og fær þar um
13.000 kr. í laun sem jafngildir 26.—27. lfl.
BSRB. Hjá bókhalds- og endurskoðunar-
fyrirtækjum fundum við engan starfsmann
við tölvuskráningu undir 9.000 krónum.
(16. lfl., 3. þrep).
Svona litur myndin út og þú getur ímyndað
þér hvers vegna við erum ekki ánægðar.
Símabl: Hvað segið þið um síðustu kjara-
samninga?
Guðrún: Það var svolítið komið til móts við
Ingunn Sigurpálsdóttir
unga fólkið með smávægilegum tilfærslum
á starfsaldursmörkum og fengu þá sumir
persónuuppbót og 1 lfl. Ég get hins vegar
ekki séð að neitt hafi verið gert fyrir eldra
starfsfólk. Það tekur því ekki að tala um
þessi 3.25%. Þau eru fljótétin. Eini ljósi
punkturinn er 6. grein samningsins þar sem
segir að miða skuli laun og kjör við aðra
kjarasamninga um sambærileg störf. Þvi
miður brýtur ríkið alltaf kjarasamninga
skömmu eftir að þeir hafa verið undirritað-
ir, t.d. með vísitölufikti eða með því að
standa ekki við það sem segir í 6. greininni,
sem ég nefndi áðan en hún hefur verið oft
áður í samningum. Þó að fastar sé að orði
kveðið núna um ákvæði í þessari grein, er
ég ekki vongóð um mikla kjarabót. Það
virðist vera betra að treysta Jóni Jónssyni
úti í bæ þegar kjarasamningar eru gerðir.
Ég mundi fagna samningi sem líktist þeim
sem bankamenn hafa.
Ingunn: Ég er sammála Guðrúnu. Við erum
ekki að biðja um einhver ævintýraleg laun
sem greidd eru úti í bæ, við viljum bara fá
það sem almennt gerist. Svo að við höldum
okkur bara við ríkisfyrirtæki, þá væri
bankasamningurinn mikil bót. Þetta er lýj-
andi starf og alls staðar er barist fyrir styttri
vinnutíma við tölvuskráningu og víðast hvar
í heiminum er hann styttri en hjá okkur.
Símabl: Er „bónuskerfi“ hugsanlegt?
Guðrún: Ég mæli ekki með því heilsunnar
22 SÍMABLAÐIÐ