Símablaðið - 01.02.1982, Page 30
málaflokkunum og hagsmunasamtökum er
nær eingöngu í höndum karla og þeir eru ríkj-
andi við aðalatvinnuvegi þjóðarinnar.
Launamismunur karla og kvenna á hinum
almenna vinnumarkaði leiðir í ljós takmarkað
gildi, lagalegra réttinda og margvíslegt launa
misrétti er við lýði þó landslög kveði á um
annað.
Launað starf er einn sá grunnur, sem lífsaf-
koma okkar byggist á og á því byggjum við þá
skoðun okkar að réttur til launaðrar vinnu sé
mannréttindi.
Það hlýtur því að vera lágmarkskrafa að
störf séu ekki svo lágt launuð að vonlaust sé
að lifa mannsæmandi lífi af þeim launum sem
í boði eru. Ragnhildur Guðmundsdóttir
FRETTIR
Skoðanakönnun um úrsögn
úr BSRB?
Mikil óánægja er meðal Símamanna með
kaup og kjör. Þeim finnst að samninganefnd
BSRB hafi haldið illa á málum í tveim síðustu
aðalkjarasamningum.
Svohljóðandi tillaga kom fram og var sam-
þykkt með öllum greiddum atkvæðum á fundi
félagsráðs F.Í.S. föstudaginn 29. janúar 1982:
Félagsráð F.Í.S. ályktar að fela fram-
kvæmdastjórn F.Í.S. að íhuga að láta fara
fram skoðanakönnun innan F.Í.S. um hugsan-
lega úrsögn úr BSRB með það fyrir augum að
F.Í.S. taki að sér öll samningamál um kaup og
kjör félagsmanna sinna.
Skoðanakönnun þessi verði gerð sem fyrst.
Undarlegt fólk í Danmörku
í fyrsta tölublaði Ásgarðs er frétt um það að
póst- og símamálastjórinn í Danmörku hafi
verið settur frá vegna sívaxandi vandamála við
Póstinn. í sama blaði er skýrt frá því að sam-
gönguráðherrann hafi sagt að auka mætti af-
köst starfsfólks.
Félag póst- og símamanna mótmælti. Taldi
orð ráðherra ómakleg. Og ráðherrann sagði af
sér.
Ja-hérna.
Það er undarlegt fólk í Danmörku að láta
ráðamenn vera ábyrga gerða sinna og orða.
28 SÍMABLAÐIÐ
Átta hundruð línu símastrengur
úr sambandi
Átta hundruð línu strengur er bilaður í
Hafnarfirði. Norðurbærinn er úr sambandi.
Viðgerð er hafin. Var einhver að tala um að
banna yfirvinnu? Það yrði skrautlegt ef streng-
ur færi úr sambandi í miðbænum í Reykjavk
á föstudagskvöldi. ATH. Strengurinn bilaði á
sunnudegi.
Sbl. 1.2.82.