Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2006, Síða 23
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006 23
J byrjun ágúst voru
þeir aðeins 292 að tölu
og er gert ráð fyrir að
í lok september verði
þeir allir horfnir af
landi brott"
búnaði í ljósi aukins hernaðarmáttar
Sovétmanna.
Táknaði hrun Sovétríkjanna
hrun varnarliðsins?
Kalda stríðinu lauk, Sovétrík-
in hrundu og Varsjárbandalagið var
lagt niður. f nánast einum hvelli dró
úr umferð óþekktra flugvéla, skipa
og kafbáta við landið.
Segja má að lok níunda áratugar-
ins hafi markað fyrstu spor í hnignun
varnarliðsins hér á landi.
Árið 1991 var orrustuflugvélum
varnarliðsins fækkað úr 18 í 12 og
rekstri ratsjárflugvéla á Keflavíkur-
flugvelli hætt árið eftir.
Þremur árum síðar, árið 1994,
var gerð sérstök bókun á milli ís-
lands og Bandaríkjanna varðandi
varnarsamninginn vegna þeirra
breytinga sem orðið höfðu í örygg-
ismálum í Evrópu og við Norður-Atl-
antshaf. Bandaríkjamenn staðfestu
sínar skuldbindingar í vamarsamn-
ingnum og íslendingar staðfestu að
herlið BNA og annarra NATO-ríkja
skyldi vera hér áfram, en með nokkx-
um breytingum.
Árið 1995 var 57. orrustuflugsveit-
in lögð niður og tímamót urðu í
rekstri Varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli. Flugsveitir í Bandaríkjun-
um hófu nú að skiptast á að leggja
vamarliðinu til fjórar til sex orrustu-
flugvélar í einu og árið 1996 voru
flugvélamar í heild orðnar 18 og her-
menn rúmlega 2.000. Sex árum áður
voru flugvélarnar 37 og hermenn
rúmlega 3.000.
Sama ár gerðu ísland og Banda-
ríkin nýja bókun við vamarsamn-
inginn og kvað hún á um að stöð-
ugleika skyldi gætt í varnarsamstarfi
ríkjanna fram til ársins 2001. Einn-
ig skyldi lækka kosmað við rekstur
varnarliðsins.
Árið 2002 varð svo enn ein breyt-
ingin sem fól í sér að yfirstjórn varn-
arliðsins færðist frá herstjórn í
Bandaríkjunum og yfir til herstjóm-
ar Bandaríkjanna í Evrópu.
Allir farnir í september
Árið 2003 lagðist svo starfsemi
landgönguliðaflotans af eftir ríflega
42 ára veru hér á landi og ári síðar var
lögð niður útgerð skipa- og kafbáta-
leitarflugvéla flotans en slíkar flugs-
veitir höfðu dvalið hér á landi í sex
mánuði í senn. Sama ár tók ofursti í
flughernum við stjóm vamarliðsins
af flotaforingja. Sú breyting markaði
einnig spor í hnignun vamarliðsins
hér á landi þar sem ofursti er einni
tignargráðu lægri en flotaforingi.
Sundrung Bandaríkjamenn tilkynntu
brottför varnarliðsins fyrirskömmu. Sundrung
í samstarfi Islands og Bandarlkjanna.
Á vormánuðum á þessu ári hafði
varnarliðið að jafnaði fjórar til sex
orrustuflugvélar hér á landi, eina
eldsneytisbirgðaflugvél og fjórar
björgunarþyrlur.
Varnarliðsmönnum og fjölskyld-
um þeirra hafði þá fækkað jafnt og
þétt og á vormánuðum vom her-
menn um 1.200. Þegar blómatími
varnarliðsins stóð voru hér rúmlega
3.000 hermenn auk fjölskyldna. í
byrjun ágúst voru þeir aðeins 292 og
er gert ráð fyrir að í lok september
verði þeir allir horfnir af landi brott.
gudmundur@dv.is
Heimild: Friðþór Eydai 2006.
Börn að leik
Hérerubörn
varnarliðsmanna
að leiká áttunda
áratugnum.
‘TuŒ Súd af
nýjum vörum
S^óíavörðustíg 5 551-5215
USTMUNAUPPBOÐ
Sunnudagskvöldið 10. september,
kl. 19 á Hótel Sögu, Súlnasal
BoSin verSa upp um 110 verk,
þar á meðal fjöldi verka gömlu meistaranna.
Veriö velkomin aÖ skoöa verkin í
Galleríi Fold, Rauöarárstíg 14,
í dag kl. 10-18,
á morgun kl. 11-17
og sunnudag kl. 12-17
Uppboðsskráin er einnig á netinu: www.myndlist.is
Rau&arárstíg 14, sími 551 0400
Kringlunni, sími 568 0400 ■ www.myndlist.is