Nýr Stormur


Nýr Stormur - 30.06.1967, Page 4

Nýr Stormur - 30.06.1967, Page 4
Ð %MMUR FÖSTUDAGUR 30. júní 1967 VIÐTAL VIÐ HVÍTA HÚSIÐ — Halló, er það í Hvítahús- Inu? — Jee, það er ég, Lindón Johnson. — Það er hann Bjarni sem var í garðinum hjá þér hérna um árið. Bjarni: Þakka þér kærlega fyrir síðast. Mikið var gaman þó ég fengi nú ekki að skoða húsið. Hundarnir, það voru nú meiri skepnurnar, þeir hljóta að éta einhver ósköp, ég er viss um að þeir fara með dilk- skrokk á dag. Svei mér ef þeir eru minni en fyrstakálfs kvíg- ur heima hjá okkur á Sögueyj- unni. Ég var nú rétt búinn að gleyma því, að hann Gylfi bað kærlega að heilsa þér og kon- unni þinni, með þakklæti fyr- ir hveitið og tóbakið, sem kom sér svei mér vel. Þó þetta sé nú farið að minnka, það mun- ar um minna en 50 milljónir. Það hefði þótt góður skilding- ur á árunum sem hann Ey- steinn hokraði kringum 1934, þá voru öll fjárlögin um 16 milljónir. — Þetta var nú að- eins útúrdúr — þú fyrirgefur hvað ég er orðmargur, en það er ekki á hverjum degi sem maður fær tækifæri til að tala við voldugasta mann heimsins. Johnson: Já, satt segir þú, Bjarni minn. En hvað er ann- ars að frétta úr sveitinni hjá ykkur, gekk sauðburðurinn vel, var margt tvilembt? Sluppu menn með hey? Þetta voru víst mestu harðindi hjá ykkur. Ég er nú sjálfur bónda- karl í Texas, og þegar þurrk- arnir ætla að drepa allt, það er nú ekkert grín, Bjarni sæll, að eiga allt undir sól og regni. Mín tillaga er, að þetta árið lítið þið aurana frá mér þess- ar 50 milljónir, ganga til bænd anna, svo þeir geti greitt skuld ir sínar við Kaupfélögin. Bjarni: Ég er alveg sammála Lindon minn. Hvort hann Ing- ólfur verður glaður, ég veit hann hefði beðið að heilsa þér ef hann hefði verið hér, en hann er nú fyrir austan á Hellu að gera upp fyrir kaupfélagið. Mér er nú sama hvað skömm- in hann Gylfi segir, hann er nú alltaf á flakki og heldur veizlur á ríkisins kostnað. Hon um er ósárt um harðindin — hann vill helst leggja bænda- stéttina niður, ekki við trog, en svona hérumbil. Johnson: Djöfull er að heyra þetta. Veit hann ekki að „bóndi er bústólpi og bú er lnndstólpi.“ Láttu dónanna reikna það út með sinni dokt- orsgráðu, hvernig við í USA færum að fæða 400 milljónir Indverja ef við hefðum ekki bændur? Jafnvel hann hr. Gylfi ykkar æti ekki rjóma- pönnukökur daglega allan þingtímann ef hann hefði ekki hveitið frá mér. Þetta er nú gott, ég bið að heilsa Ingólfi, ekki Gylfa. Bjarni: Þú eijt stór í sniðcn- um Lindon, 4g skal styðja dreifbýlið og bændastéttina. Ég tek þá Eystein, hann býð- ur í gættinni og hendi Gylfa í Seðlabankann, Jóhannes get- ur skotið undir hann stól- garmi. Lindon: Nú líkar mér við þig. Þú skalt sannarlega fá að skoða Hvítahúsið næst, og ég skal skreppa með þig til Tex- as, þar er nú búið laxmaður, ég hef mitt eigið mjólkurbú óg sláturhús! Bjarni: Það er nú munur „Hólastóll eða hundaþúfa“. Ég á bara kofan minn í Háuhlíð- inni við hliðina á honum Tolla sem stjórnaði Bændahöllinni. Annars er nú bezt að koma sér að efninu: Það var verið að kjósa hérna um daginn, ég hékk á einu atkvæði og nú sit ég fastur í þessum fjanda næstu fjögur ár. Hjá mér er nú allt á hausnum eftir 8 ára góðæri, jafnvel þó ég hafi þessa milljón á dag frá ykkur vermdurunum í Keflavík. Ég vona að þú farir ekki að kalla strákana þína heim, stelpurn- ar hérna yrðu alveg óðar, þær myndu jafnvel reyna að synda vestur. Ég rak Gunnar Thoroddsen í útlegð til Danmerkur eftir að allt. var komið undir kvið hjá honum. Magnús á Mel dugar Frh a bls 6 Sama dag og Bjarni Ben. talaði í útvarpsræðu um mark- að, sem hér sýnist vera fyrir hinn ótrúlegasta óhroða í blöð um, birti Lesbók Morgunblaðs ins í grein, er nefnist „Af göml um blöðum“, þar sem sagt er eftirfarandi um Jóhannes á Borg: „Meðal farþcga með Skál- holti 1907 var Jóhannes Jós- epsson glímukappi frá Akur- eyri, og einnig Jón Helgason fimleikamaður, síðar íþrótta- kennari í Rússlandi' og heild- sali í Kaupmannahöfn. Jóhann es leit ekki á okkur strákana frekar en við værum hundar, mér fannst hann hrokalegur, og hefir alltaf verið illa við hann síðan. Þó fór ég í Iðnó og horfði á Jóhannes glíma grísk róm- verska glímu við Óskar Flaat- en, heljar mikinn norskan bolta, sem sýndi hér með A. Hammer fimleikamanni, katt- liðugum apaketti, sem gerði alls konar kúnstir. Og Jóhann- es stóð sig vel, því verður ekki neitað, og það var gott vegna okkar göfugu þjóðar, sem er af konungum komin, en ekki vegna Jóhannesar. Eftir sýn- inguna sagði kona, að sér fynd ist dónaskapur af Jóhannesi Jósepssyni að ganga berlær- aður til rómversk-kaþólskrar glímu, sem þótti vel sagt. En mikið var ég feginn er ég frétti síðar, að Jóhannes hefði legið í konungsglímunni á Þingvöll- um. Honum var það mátulegt. Jón Helgason var eftir því ljúfmenni, sem Jóhannes var hrokalegur. Ég bar mikla virð- ingu fyrir honum, og hefir allt- af þótt vænt um hann. Eftir 1920 kom hann hingað ör- snauður farandsali. Þá keypti ég af honum ómerkilegt skran fyrir um 8 þúsund danskar kr. Ég hefði ekki keypt af Jóhann- esi, en þá var ég mattadór. Og svo var það 1912, er ég var tvítugur. Ég var þá ríkur, átti 5 krónur og keypti flösku af brennivíni, beztu tegund hjá Bensa Þór. Ég bauð pabba inn á Norð- urpólinn, þar seldi gamli Ás- geir kaffi og gaf snafs, eins og á vertshúsinu á Hvammstanga. Þetta var á sunnudagsmorgni og talsvert margir viðskipta- vinir að drekka kaffi. En þeir voru allir með húfuna fyrir andlitinu, svo þeir þekktust ekki. Okkur langaði ekki í kaffi, en hvísluðum, að við vildum viskí, og var þá boðið inn í stofu. Ásgeir gamli var bezti karl, þó hann hefði sína galla, ég er viss um að ég hitti hann sjá sankti Pétri. Þá sá ég fyrst blessaðan forset- ann, og leizt strax illa á hann. Hann var þá stúdent, og leit á mig með ógnar fyrirlitningu, rétt eins og ég væri einhver ómerkileg persóna. Ég segi það satt, að mér hefir alltaf verið illa við hann síðan, þé hann hafi aldrei gert mér neitt mt.“ Hefði nokkur „gul pressa“, eins og Sveinn Ben. ráðherra- bróðir kallar skorinorð blöð, leyft sér að bera þetta fram fyrir þjóðina — og það á sjálf- an þjóðhátíðardaginn? fyrir unga og gamla M STEINALDARMENNIRNIR Fred Flintstone og fjölskylda Fyrirgefðu, Betty, ég held Ig verði a« hring- ja eftir iœkni handa Jpeira.... Irid.mnk o( S<f..n G.md HundraS neanderthils'heraienn korau dSndrandi yfir hœuina.. við þeim salibunu af eteinura og, íe'var alveg að ni. i hípunktinuk: ""s (Aðsent)

x

Nýr Stormur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.