Freyr - 01.03.1959, Side 5
REYKJAVÍK, MARZ 1959
HARALDUR ÁRNASON:
Véla- og verkfæraprófanir í nágrannalöndunum
-----------------------------------------N
Eftirfarandi grein er hluti af skýrslu Har-
alds Árnasonar, vélaráðunauts Bf. ísl., um
ferg hans til Vestur- og Norður-Evrópu á s.l.
sumri. Haraldur heimsótti m. a. vélareynslu-
stöðvar, landbúnaðarsý ningar og búvélaverk-
smiðjur. í eftirfarandi kafla se;;ir hann frá
vélareynslustöðvum í nokkrum löndum.
V-----------------------------------------
Bretland.
National Institute of Agricultural Engi-
neering (NIAE) með höfuðbækistöðvar í
salakynnum gamallar hallar í Wrest Park,
Silsoe og útibú Scottish Machinery Testing
Station í Howden, Skotlandi, er sennilega
fullkomnasta verkfæra- og vélaprófunar-
stofnun, sem um getur.
Starfsliðið er milli þrjú og fjögur hundr-
uð manns og aðstaða mjög fullkomin, hvað
uiælitækjum og verkstæðisáhöldum við-
kemur.
Stofnunin vinnur í nánum tengslum við
vélaframleiðendur, enda er í Bretlandi
framleitt mikið af alls konar búvélum, bæði
til heimabrúks og útflutnings.
Framleiðendur eru ekki skyldugir til að
láta prófa vélar þær, sem þeir selja, en
flestum finnst hagur í því að láta prófa
vélarnar og geta þá notað skýrsluna um
prófunina til að sýna kaupendum fram á
gæði vörunnar.
Skýrslur um niðurstöður prófana eru ekki
birtar, nema framleiðandi óski þess. Séu
skýrslur ekki birtar, er bannað að nota í
auglýsingaskyni þá hluta skýrslunnar, sem
geta um hagstæða eiginleika vélanna, nema
birt sé hitt líka í auglýsingunni, sem er mið-
ur hagstætt.
Brjóti framleiðandi samninginn um próf-
unina á einhvern hátt, verður skýrslan birt,
hvort sem hann vill eða ekki.
NIAE hefur ekki einvörðungu með hönd-
um vélaprófanir, heldur líka margs konar
tilraunir með tæknilega hluti, svo sem gróð-
urhúsatilraunir með sjálfvirka vökvun,
áburðarnotkun og staðsetningu áburðar í