Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.11.1960, Qupperneq 3

Freyr - 01.11.1960, Qupperneq 3
KORNSKURÐUR Á EGILSSTÖÐUM Kornskurður á Egilsstöðum. „Fögr er hlíðin, svo at mér hefir hon aldri jafnfögr sýnzk, bleikir akrar, en slegin tún, ok mun ek ríða heim aptr og fara hvergi.“ Orð þessi eru öllum kunn, þau eru höfð eftir Gunnari á Hlíðarenda, er hann hafði verið útlagi dæmdur, var ferðbúinn en leit heim til hlíðarinnar fögru og ákvað svo að taka hverju er að höndum bæri og fara hvergi. Þessi ummæli hans voru mér í huga er ég sveif á fáki fráum, gandreið um loftin blá og lenti svo á flugvellinum hjá Egils- stöðum á Héraði, hinn 13. september síð- astliðinn. Það var áliðið dags. Sól var í suðvestri og baðaði hún Héraðið allt; haustfölvi var víða um ása og fell, en í byggð blöstu við bleikir akrar og slegin tún, bændabýlin þekku og svo Lagarfljótið og nýja brúin, og mörg önnur mannvirki og náttúrusmíðar um gjörvallt Hérað, allt frá Héraðssandi til Snæfells langt í suðri. Víð er byggð og fögur, enda löngum bú- sæld verið hér um slóðir, allt frá upphafi íslandsbyggðar, en að sjálfsögðu hafa hrammar harðæra einnig káfað um sveitir hér, og verið meinvætti mönnum og mál- leysingjum við og við um allar aldir. En nú blasir það við í dýrlegu litskrúði haustsins. Sunnanvindur fer um byggð og ból og þerrar það, sem þurrka. skal, og þá auðvitað líka kornið þeirra Egilsstaða- bænda og annarra bænda um þessa slóð, sem framtak hafa sýnt og bætt við nýjum lið framleiðslu á búum sínum þar sem korn- ræktin er. Gandreiðin lækkar flugið og á hægri hönd bylgjast kornakurinn bleikur fyrir krafti vindarins — það eru ölduföll á Lagarfljóti grábláu og á bleikum byggakri. Og hingað er ég kominn til þess að stað- festa og vottfesta framtak bænda, bænda á Fljótsdalshéraði, og sérstaklega bænd- anna á Egilsstöðum í þetta sinn, en næst þegar ég kem veit ég, að þeir verða margir bændurnir á þessari slóð, sem rækta korn og uppskera með nýtízku fyrirkomulagi. Kornræktin á Egilsstöðum á ekki langa sögu að baki en þeim mun eftirtektarverð- ara er framtak Sveins bónda og sona hans, og þeim við hlið standa ráðunautar héraðs- ins nú og ýmsir áhugasamir bændur, ákveðnir í því að rækta meira og miklu

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.