Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.1960, Blaðsíða 8

Freyr - 01.11.1960, Blaðsíða 8
336 FRE YR skipta um poka, hagræða þeim jafnóðum og kornið fyllir þá, binda um opin og láta þá falla í röst þar, sem bíll kemur og ekur þeim heim til þurrkunar. Það eru verklegar athafnir þetta og hér er eiginlega sá örygg- isventill fundinn, sem alltaf hefur skort til þess að gera kornræktun á íslandi örugga. Uppskeran er góð hér á Egilsstöðum í ár, ómæld enn að vísu en líklega 25—30 tunnur af byggi af hverjum hektara. Og hér eru akrar nú um 17 ha. Uppskeran ætti því að verða milli 4—500 tunnur samtals. Og svo hafa ráðunautarnir umsjón með sýnisreit- um, og bændur hér austanlands rækta í ár korn á álíka landssvæðum og akrarnir nema hér á Egilsstöðum. Ef reiknað er með álíka uppskeru hjá þessum aðilum má áætla að uppskera korns nemi 800—1000 tunnum um Austurland í sumar, eða 80—100 tonnum. Ráðunautarnir tjá mér, að áhugi fyrir kornræktun breiðist ört um starfssvæði þeirra, og að víst sé, að á næsta ári verði akrar á miklu fleiri stöðum en í sumar og víðátta kornakranna að sama skapi meiri. Auk þessarar mikilvirku uppskeruvélar er sjálfbindari og þreskivél til, sem einnig má nota og þá einkum á hinum minni ökrum. Það korn, sem uppskorið er með þeim tækj - um, verður náttúrulega sett í bindi og þurrk- að á gamla vísu. En kornið, sem upp er skorið með AKTIV þarf líka að þurrka. Til þess þarf sérstakan umbúnað og er það önn- ur saga, sem hér skal ekki rakin, en þurrk- unarstöðvar verða sjálfsagðar og eðlilegar þegar kornyrkja verður hér að framkvæmd í fullri alvöru, en um það skulum við ekki efast, því að á þeim landssvæðum, sem hægt er að sá í apríl og fyrst x maí er kornræktun sennilega jafn örugg og kartöflurækt, þegar fengin er sú tækni, er viðeigandi er að nota til björgunar uppskerunni á haustnótt- um. Og hér er hún komin. Að viðstöddum fréttamanni frá Ríkisút- varpinu, er sagði frá athöfnum þennan dag, í fréttaauka um kvöldið þann 14. september s. 1., var ég áhorfandi og vottur að athöfn- um þeim er fóru fram hér á Egils- stöðum. Ég ætla og endurtek, að þessir atburðir marki þáttaskil í búnaðar- sögu okkar og að hér sé trygging fundin fyrir því, að tilraunirnar á Sámsstöðum og niðurstöður þeirra sýni hundraðafaldan árangur á komandi tímum. Landbúnaðarráðherra, sem hér var einn- ig viðstaddur nefndan dag, og vottur að at- höfnum og árangri þeirra, lét svo um mælt, að nú væri tími til komiixn, að kornræktar- frumvarp það, er komið hefur fram á Al- þingi en legið hefur of lengi í deiglunni um undanfarin ár, verði samþykkt og með því stuðlaö að aðild ríkisins til þess að auð- velda byrj eixdatökin á framleiðslu korns um sveitir landsins. Reynslan hefur sýnt, að meira en 30 ára starf við ræktun korns á Sámsstöðum hef- ur ekki skapað fordæmi í nágrenninu til þess, að þar yrði kornyrkja almennt upp tekin, sem liður í búskap bæixda. Fordæmi Egilsstaðabæxxda, með þriggja ára kornrækt, hefur þegar skapað áhuga, sem virðist almennur um Austurland og með tilkomu þessa nýja tækis standa vonir til þess, að áhugaaldan breiðist ört og birtist í ljósi veruleikans sem nýsánir akrar að vori og víðáttumiklir bleikir akrar á haust- nóttum um gjörvallar sveitir landsins, en á vissum stöðum rísa þurrkunarstöðvar og kornhlöður bændanna, rétt eins og gerist hjá bændum grannþjóða okkar. Þegar gandreiðin hóf sig á loft frá Egils- staðaflugvelli, miðvikudaginn þann 14. september, undir stjórix Björns Pálssonar, með Ingólf Jónsson, landbúnaðarráðherra, Stefán Jónsson, fréttamann útvarpsins, Árna Gestsson, vélakaupmann og undirrit- aðan innan borðs, í bláfugli Björns, bland- aðist niður kornþreskivélarinnar á akrinum dyn farkosts okkar, og á þessum lygna og sólbjarta haustdegi var sambland niðs þessa táknrænt forspil að þeirri hljóm- kviðu tæknibúnaðar íslendinga, sem not- aður verður við kornyrkju í framtíðinni. Og bleikir akrar og slegin tún blasa við er horfið er til Héraðs. G.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.