Freyr - 01.11.1960, Blaðsíða 20
348
FRE YR
CONSUMER PRICE, MARKETING AND OISTRI8UTION MARGIN AND FARMEF PRICE
FOR BEEF IN WESTERN EUROPEAN COUNTRIES
Dollai pei 100 kg carcass weighl
0 l. awa Mm — awa Jai — imin nan — — e™1 —i o
Ausliia, Oenmaik Geimany Ireland Nell\eil3nds Sv-edei'
Beljium France Cieece llaly Nor>3y S«dttiland_
IsiiMosesa
KJÖTVERÐ
í EVRÓPU
Bændur fá 60—80% af því
sem neytendur greiða fyrir
kjötið.
Fyrir skömmu sencii IFAP
frá sér skýrslu yfir verð
það, sem bændur fá og svo
það sem neytendur greiða
fyrir kjöt og flesk í hinum
ýmsu löndum, sem eru
meðlimir í IFAP.
Skýrslan er fróðleg og
hún sýnir greinilega, að
allmikill munur er á því í
hinum ýmsu löndum. —
Glöggt yfirlit verður bezt
veitt með því að birta hér
heildarskrána í súluriti,
sem sýnir þetta, en þar eð
myndin er tekin eftir
frumgagni, eru skýringar
innritaðar á ensku.'
Á efra súluritinu eru töl-
urnar táknandi fyrir 100
kg kjöts af nauti, er vegur
500 kg og verðið tilgreint
í dollurum, og er þar svarti
hluti súlnanna sá hluti
verðsins, sem bóndinn fær,
en strikaði hlutinn efsti er
það, sem fer til milliliða
milli framleiðandans og
neytandans.
Á neðra súluritinu er hið sama sýnt, en
aðeins í hundraðshlutum skilgreint á sama
hátt, svarti hluti súlnanna er það, sem
bóndinn (framleiðandinn) hefur fengið, en
súlan öll, fyrir hvert land, er verð það,
sem kaupandinn hefur orðið að greiða, og
því er strikaði hluti hverrar súlu að sjálf-
sögðu milliliðakostnaður.
Á fæti myndarinnar er tilgreind röð
þeirra landa, sem súlurnar tákna í hverju
tilfelli, en þau eru: Austurríki, Belgía, Dan-
mörk, Frakkland, Þýzkaland, Grikkland,
írland, Ítalía, Holland, Noregur, Svíþjóð
og Sviss.
Súlurnar sýna, að nokkur munur er á,
hvað mikill kostnaður er af því að koma
kjötinu frá framleiðanda til neytanda, og
hann nemur frá 20—40% en það þýðir
þá, að framle.ðandinn fær frá 60—80%
af því, sem neytandinn greiðir fyrir vör-
una. Samanburðurinn er þó ekki óbrigðull
mælikvarði,því að í sumum löndum er sölu-