Freyr - 01.11.1960, Qupperneq 22
35Ö
PREYR
Kartöfluverzlunin.
Sú nýlunda hefur gerzt í haust í verzlunarmálum,
að kaupmenn í Reykjavík hafa neitaff að selja kart-
öflur, af því að þeir telja sig tapa svo miklu við að
vigta þær sundur og setja í umbúðir, að hvergi nærri
hrökkvi hin lögleyfða álagning til þess að bera
kostnaðinn.
Það er satt, að umbúðir munu vera orðnar dýrar,
en hverju verði skal meta vinnu, húsnæði, og rým-
un, við sundurvigtun kartaflnanna er líklegt að
kaupmennirnir viti vel.
Hins vegar munu kaupfélög og kaupmenn utan
Reykjavíkur halda áfram sölu kartaflna eins og
verið hefur — og taka þá á sig tapið við söluna!!
Dýrasti hrúturinn,
sem seldur var á uppboðum bænda á Gotlandi í
haust, var sleginn fyrir 1.500 krónur (jafnvirði um
11.000 ísl. kr.), segir Jordbrukamas Föreningsblad.
Sauðfé seldist fyrir gott verð á uppboðunum og var
keypt af bændum úr fjarlægustu hlutum landsins,
svo sem frá Gautalandi og alla leið úr Norðurbotn-
um. —
Kornuppskera
um Norðurlönd hefur verið affallasöm í ár. Stór-
rigningar gerði um víð svæði um það bil, sem upp-
skera átti að hefjast og stórfelldar úrkomur voru
langt fram í september. Svo mikil voru úrfellin sums
staðar, að landsvæði lágu imdir vatni og birtu blöð
og tímarit myndir af skrýfum er stóðu eins og smá
eyjar á vatnasvæðunum.
Samfara votviðrunum voru hlýindi og spillti það
korninu ennþá frekar, því að víðar spíraði það í
axinu. Uppskeran var nokkur að vöxtum, en er talin
gæðarýr á stórum svæðum.
Markaðsskýnslur greina frá því, að þetta hafi þó
ekki veruleg áhrif á fóðrunarskilyrði búf járræktar-
manna, því að frá Rússlandi fáist bygg í ár, sem sé
ódýrara en annað fóður á markaði. Hins vegar mun
nokkur vandi á höndum vegna þess, að maltbygg er
hvergi nærri svo gott sem skyldi, en maltbygg er
ræktað í ríkum mæli um öll Norðurlönd til ölgerðar.
Garnaveiki berst til Noregs
með búfé frá Skotlandi.
f Noregi hefur gamaveiki í nautgripum verið
óþekkt run langt árabil.
Fyrir rúmum þremur árum síðan vora fluttir til
Noregs nautgripir frá Skotlandi af Aberdeen-Angus
kyni.
Að siálfsögðu var full aðgæzla höfð við innflutning
þennan, svo sem lög og reglur þar í landi mæla fyrir
um, m. a. vora gripimir hafðir í sóttkví í heilt ár.
í fyrstu var allt með felldu, og veikinda varð ekki
vart í hinum innfluttu gripum.
Síðastliffið sumar varð hins vegar vart nokkurra
tilfella af garnaveiki í nautgripum, sem setja má í
beint samband við innflutning á gripunum frá Skot-
landi fyrir þremur árum síðan. og sumir hinna inn-
fluttu gripa hafa nú veikzt af gamaveiki.
Er ljóst var orðið, að alvarlegur búfjársjúkdómur
hefði flutzt til landsins, gerðu norsk heilbrigðisyfir-
völd þegar víðtækar ráðstafanir til bess að reyna að
kveða sjúkdóminn niður, hvernig sem til tekst.
Hér er ennþá eitt dæmi um áhættu þá, sem alltaf
er samfara innflutningi búfjár.
Mjólkurfitan.
Hvers vegna er kvöldmjólkin feitari en morgun-
mjólkin? Þannig hafa menn oft spurt um öll lönd,
en enginn getað svarað. Nú hafa þýzkir vísinda-
menn tekið upp það hlutverk að finna ástæðuna, og
þeir telja að hennar sé að leita í ljósáhrifum.
Þeir létu kýmar standa í myrkri að deginum en
björtu ljósi að nóttunni, og með því að gera þannig
dag að nóttu og nótt að degi reyndist morgunmjólk-
in feitari en kvöldmjólkin. Þar með slógu þeir því
föstu að hér sé um ljósáhrif að ræða.
I™ Útgefendur: Búnaðarfélag ísl. og Stéttarsamband bænda. - Útgáfunefnd: Einar
| — Ólafsson, Pálmi Einarsson, Steingr. Steinþórsson. - Ritstjóri: Gísli Kristjánsson. -
• Ritstjórn, afgreiðsla og innh.: Lækjarg. 14 B, Reykjavík. Pósth. 390. Sími 19200
BUNAÐARBLAÐ Áskriftarverð kr. 90.00 árgangurinn. — Prentsmiðjan Edda h.f.