Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.01.1964, Qupperneq 11

Freyr - 01.01.1964, Qupperneq 11
FRE YR 5 svo mikinn kostnað, að með öllu væri óvíst hvort kaupendahópurinn yxi það, að slíkt gæti nokkurn tíma taorið sig, nema að marg- falda áskriftargjaldið og þá væri víst, að ýmsir hættu áskrift aðeins vegna þess, að þeir hefðu ekki efni á að kaupa svo dýrt málgagn. Þetta siðasta atriði var og er vel réttlæt- anlegt. Það eru alltaf nokkrir kaupendur sem hætta áskrift þegar verðið hækkar og tilgreina hreinskilnislega, að þeir hafi ekki efni á að kaupa ritið því að tekjurnar séu ekki til þess aö offra þeirri upphæð. Þetta eru aðallega aldraðir eða gamlir menn, sem hafa mjög rýrar tekjur af búum sínum. Hitt mætti vel vera réttlætanlegt, þó að fátt sé um börn í sveitum í hlutfall við það, sem annars staðar er innan þjóðfélagsins, þá mætti eitthvað vera af efni við þeirra hæfi, einkum unglinga, og annars staðar eru gefin út sérstök málgögn vegna sveita- unglinga, þar sem 4-H starfsemin er lífræn og starfandi hreyfing. Hér á landi hefur hún aldrei fest rót og fjárveitingavaldið hefur ekki heldur viljað fallast á að veita stuðning eða lið því máli þrátt fyrir að Búnaðarfélag íslands hefur hvað eftir ann- að óskað þess, að bætt yrði við fjárveitingu til Búnaðarfélagsins með það að markmiði að taka upp þá starfsemi. Að konur í sveit eru nokkrum hundruð- um færri en karlmenn er staðreynd. Þær eru samt nógu margar til þess, að vel væri athugandi og réttlætanlegt að hafa meira sérefni í Frey þeirra vegna, en hitt skal játað, sem sagt var um árið, að HÚSFREYJ- AN — tímarit Kvenfélagasambands ís- lands, er til þeirra vegna og hví að hlaupa í kapp við þau samtök? Þetta má rétt vera, en eigi að síður hefur Freyr við og við mál kvenna á dagskrá, en mætti máske meira vera af því tagi? HVERT SKAL STEFNA? Hvað á að vera með og hvað utan gátta í tímariti um landbúnað, sem árlega er gert ráð fyrir að sé um 380 síður að lesmáli, verða auðvitað aldrei allir á eitt sáttir um. Það væri hægt að skrifa meira um menn, en á kostnað hvaða pósta. Búfé og búfjár- rækt tekur alltaf umfangsmesta rúmið, — eðlilega, það er stærsti póstur búskaparins. Önnur málgögn hafa viðskiptin og verðlag- ið og því er Freyr með takmarkaðan boð- skap frá þeim vettvangi. Má vera að hlutur Stéttarsambandsins ætti að vera stærri i Frey. Þó er það sannast mála, að ef um þau mál er skrifað fræðilega og með rökum þá þykir mörgum það leiðinlegt lestrarefni. í hillum Freys liggja stöðugt 20—30 tíma- rit víðs vegar að, innlend og útlend — mest af hinum síðarnefndu — og geta þeir er vilja fengið tækifæri til að skoða þau og lesa, ef þeir eiga leið til höfuðborgarinnar. Getur þar gefist tækifæri til að bera Frey saman við umrædd fagrit og gera sér grein fyrir þeim öllum, þau koma að staðaldri. Vel vitum vér, að ýmis þeirra eru Frey langtum fremri, enda upplag þeirra marg- fallt og aðstaða því allt önnur til að gera þau þannig úr garði, að betur hæfi lesenda- hópnum, en vér ætlum að Freyr geti. En hvað búning snertir getur Freyr staðið á borði við hlið ýmissa þeirra. Og hvað snert- ir höfundana — já, þar eigum við náttúr- lega ekki úr svo stórum hópi að velja og gerist á erlendri grund, en ef þessir 50—60 höfundar, er skrifa í Frey, legðu ekki til efnið, þá þyrfti aðra til þess, en hverja? Hyrfu þeir úr röðum höfundatalsins er á- stæða til að ætla, að þá hyrfi fagmennskan um leið. En máske er það ekki rétt að Freyr sé fagblað. Hvað á hann þá að vera? Út- gefendur ætlast til að hann sé fagrit, en vilja lesendur það á annan veg? G.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.