Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.01.1964, Qupperneq 22

Freyr - 01.01.1964, Qupperneq 22
16 F R E Y R var 1882, nema að þá lá hafíshella landföst, sem ekki sá út yfir, allt sumarið fram á höf- uðdag, enda dó þá fólk úr hungri þar vestra. Varð það lokaár hungurdauða fólks hér á landi. Mikil er nú breytingin orðin á einum mannsaldri. Á stöku stað sunnanlands féll kartöflugras í júlí. Annars var sumarið sólríkt víða sunnanlands og vestan og oft stórkost- legur murxur á hita við suöur- og norðurströnd landsins. Hinn 11. ágúst komst hitinn hér mest í 6°, en varð 18° mest sunnanlands. Afleiðingar þessa veð'urfars hér um slóðir, urðu miður þægilegar: Kýr mjólkuðu illa í kuldum sumarsins og lítilli sprettu í högum og á túnum eftir fyrri slátt. Sumarið hér var raunar aðeins júnímánuður. Hann orkaði því, að í'yrri slattur á túnum varð sæmilegur. Dilk- ar hér um slóðir urðu lakari til frádrags en nokkru sinni áður eða heilt yfir um 2 kg. minni skrokkvigt en í meöalári. Stafaði það af sum- arkuldanum. Lífgrös hagans — smágerr vallar- gróður — sem sprettur innanum grófgerðari jurtir, náði sér aldrei á strik, fyrir næturfrost- unum, en af þeim góðri fá dilkarnir þrif og af honum mjólka ærnar. Sölnun til heiða og í högum byrjaöi í júlí, sem mun jafnvel óheyrt áður og svo bættust við frostin í fjarliggjandi högum, hrakviðri, stormar, stór úrfelli, stór- hríðar og snjóar. —O— „Kjarni“, sem borinn var á milli slátta, verkaði lítið og víða nær ekkert. Lítur nú svo út, að gömul tún, sem ár eftir ár fá aðeins til- búinn áburð, séu að hætta að spretta af honum. Þau vantar að fá búfjáráburð með. Þessu þurfa bændur að veita athygli. Það', með öðru, ætti að styðja þá nausyn að hirða vel og hagnýta búfjáráburðinn, með’ þvi sem hann gefur líka beztu töðuna. Uppsláttur varð sáralítill hér nyr'ðra og líka víð’a um land. Kartöflur brugð’ust hér um slóö- ir, nema í volgum görðum. Það er sagt frá því, sem furðufrétt, að bóndi tók upp kartöflur þær, sem hann sá'ði í vor og notað’i þær. Annað var ekki í garðinum. Verð'hækkun sú, sem var'ð i haust á sauð- fjárafurðum, hvarf nær alveg hér um slóö'ir í afföll afurðanna. Það verða bændur að’ þola bótalaust. Sú öfugþróun er nú orðin hér í héraði, að nú safnast upp mjólkurafurðir — smjör og ostur - svo að jafnvel skiptir tugum millj- óna króna og teljast helzt óseljanlegar, um leið og segja má, að gapandi markaður sé fyrir sauðfjárafurðir. Á síðastliðnu hausti var slátrað í N-Þ. um 35 þúsund dilkum. Finnur Kristjánsson kaup- félagsstjóri segir, að' dilkarnir hefðu þurft að vera 50 þúsund, eða 15 þúsund fleiri og að því skapi minna mjólkurinnlegg. Hér verður því að brjóta blað og athuga málin betur. Bændur telja sig hafa meira upp úr kúnum og hefur það svo verið undanfarin ár. Af þeirn sökum verður þá líka meira dekrað við' kýrnar. Telja sumir, að kindur þurfi að hafa til að éta hrakin hey og hey, sem kýrnar éta ekki. Þær eru nú að hætta að éta töðu af gömlum tún- um, sem aðeins er borinn á tilbúinn áburð’ur og er þaö athyglisvert. Sannleikurinn er sá, að hér þarf að gera rækilega upp á milli sauð- fjárins og kúnna. Verður það haganlegra nú, fyrir kindurnar, eftir síðustu verðhækkun. 1 liaggæða sveitum og þar sem langt er að' flytja mjólk, eins og í Mývatnssveit og Bárðardal, ættu bændur enga mjólk að' framleiða til sölu, en auka afurðir sauðfjár. Athuganir í þessum efnum þurfa að fara fram víð'ar um land en hér í héraði, því að sýnilegt er, að sauðfjár- ræktin þarf að' stóraukast í landinu. Sauðfjár- afurðir eru útflutningsvara landbúnaðarins. Hér á landi rná hafa milljónir sauðfjár. Það þarf að' rækta stór landflæmi til beitar fyrir kýrnar. Eins verður að græða upp í högum fyrir sauð'féð’ og svo má fita dilkana á ræktuðu landi. Til þess hefðu beztir verið kynblending- ar undan íslenzkum ám og Border Leicester- hrútum. Það mál féll niður vegna mæðiveik- innar, en er í sjálfu sér stórmál fyrir sauðfjár- ræktina — og stærra en holdanautamálið. Það hefur sauðféð fram yfir kýrnar, livað það út- heimtir miklu minni vinnu. Hér á Laxamýri hefur sauðféð verið af húsi um 5 mánuði á þessu ári. Það er líka drjúgt, sem sauðfé heyjar sjálft, að vetrinum, með útibeitinni. Landbúnaðurinn er í hálfgerðu svelti af því a'ð hann vantar miklu meira veltufé. Hann þarf að auka útflutninginn stórlega. Það verð- ur að gerast í afurðum sauðfjár fyrst og fremst. Eg heyri sagt, að bændur í héraði Þist- ilfjarðar ætli að fara að stofna mjólkursam- lag. Mig rak í rogastanz. í því héraði eru skil- yrði til aukinnar sauðíjárræktar, meðal þeirra allra beztu, sem gerast í landinu. Landbúnaðurinn er undirstöðuatvinnuvegur þjóðarinnar, hvað sem hver segir. Þar verður þvi að herða sóknina fram. Hann vantar fleira fólk, meira veltufé, meiri búvísindi og miklu meiri framleiðslu til útflutnings. Hér eru mikil verkefni til úrlausnar og mikill efniviður til framfara. Óska bændum öllum og búaliði árs og friðar.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.