Freyr

Volume

Freyr - 01.01.1964, Page 17

Freyr - 01.01.1964, Page 17
FRE YR 11 annarra þjöða, af öSrum stofnum hrossa, að vita betur en menn, sem lifað hafa allt að þrjár ævir þeirra innan um hross og ætíð í verkum með hross; menn, sem hafa séð hvaða eiginleikar verða helzt samferða í erfð hjá þessari og þessari ættinni og eru því einir um allar vonir til að vera dómbærir um, hvort leistur á löpp eða hringur í auga er ekki aðalsmerkið sjálft, þótt búfræöin telji það galla. Við slík skilyrði, sem nú hefur verið lýst, er varla öðru að tjalda en persónuþekkingu kunnugra manna, því að þótt allur bóklær- dómur sé þakkarverður til viðbótar og sam- anburðar, þá er hitt aðalhaldreipiö. Dæmin um mistök, í vali aðkomumanna og um ættarspjöll af aðfluttum gripum, eru svo mörg, að varla verður neitt eitt eða fátt gripið til sönnunar máli sínu án þess að koma upp um sig hneykslanlegri van- þekkingu á öðru enn verra. Fjöldaframleiðsla, út af einu kyni eða tveimur, veldur því, að nafn ættföður eða ættmóður, dregið fram til viðvörunar, gæti leitt yfir sannfróðan mann og réttorðan féránsdóma fyrir atvinnuróg, svo að ekki yrði eftir hjá honum eyrisvirði hvað þá heilt hross til aö rækta út af betra kyn en hitt, sem lastaö var. Embættismann í starfi má, samkvæmt meiðyrðalöggjöfinni, varlega hnjóða í, þótt aö réttu sé- Hví skyldi graðhestur lakar varinn? Annað dæmi: Eyjólfur bóndi Jónasson í Sólheimum i Dölum, fékk um hendur Guðbrands ísbergs, fyrrverandi sýslumanns og alþingismanns, bleikálóttan fola norðan úr Eyjafirði. Hestur sá var af reiðhrossakyni og vit- lausara fjörofstæki en í móður hans, Litladals-Gránu Magnúsar Árnasonar smiðs, þá bónda þar, er ef til vill enn ó- fundið. Sjálfur líktist hesturinn meira í föðurætt sína um viljamagn, en þar voru miklu venjulegri hross. Undan honum komu þó gæðingar, honum meiri að fjör- hörku og fleiri kostum. Kom þar þó hvorki að úrvali né æxlun kandidatspróf eða Hvanneyrarframhaldsnám, né heldur niður þann legg, sem frá þessum bleikálótta (Fauta) liggur niöur til Glettu Sigurðar Ól- afssonar, sem að vísu er vitlaust ættfærð í sýningarskrá Skógarhólasamkomu þ. á., þar vantar lið á milli hennar og Fauta, en mætti vera kunnug sökum afreka á skeiði, væri þeim, er bókfræðinni einni treysta og vald- boðum, rétt að hrinda fyrri skeiðmeti henn- ar en gera hernað að því, sem þeir vita ekki nema gefið geti þeim sjálfum gýligjafir, ef friður fengist til að afhenda þær. Til léttis við þá leit að snillingi, til að hrinda metinu, mætti svo sem benda á Litlu-Glettu sama eiganda. Þar ætti móður- kynið að vera nógu vakurt og varla spillir föðurættin, þar sem sú meri er undan Hreini frá Þverá, sem skráður er í sýningarskrá Hrossaræktarsambandsins árið 1950 með á- kveðna feðrun en óþekkta móður. Er það ekki kraftaverk að koma upp slík- um grip? Nálgast það ekki eingetningu? Hlýtur ekki slík tilkoma að boða fágætan árangur? Æpandi útkoina. Hindrun einstaklinga við að reka bú sín eftir eigin viti er ætíð tvíeggjað vopn. Hún tefur ekki aö'eins afglöp flónanna heldur líka úrræði ráðdeildarmannanna. Um rækt- unarmál er því miður það sannast mála, að í þeim efnum eru flestir allheimskir, en því verr gefast heimskra manna ráð, sem fleiri koma saman. Alþingismönnum var fjölg- að hvað eftir annað. Hefur ekki alltaf farið versnandi um lagasetningu? Nú síðast semur ekki lögfræöingunum og fyrrverandi lagasmiðum á Blönduósi viö grjótpála hrossaræktarinnar um, hvað það þýði, sem hann og aðrir hafa sett saman af reglum fyrir þjóðfélag sitt, hrossarækt viðkomandi. Ekki er nú skilningurinn skarpur eða stíll- inn ljós. En hrossakyn Ásgríms í Mikley, Sva'ða- staðakynið, Heiðarhrossin, Hindisvíkurætt- in og Þorbergsstaðahrossin í Dölum mun allt vera úrval og ræktunarárangur ein- staklinga, sem tókst betur einum en þeim hefði getað tekizt í félagi við „sjö anda sér verri.“ Sérstaklega æpir á mann útkoman af

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.