Freyr - 15.04.1964, Blaðsíða 13
FREYR
137
ins, virðist ekki heldur hægt að draga nokkra ályktun á hvern hátt hinar mis-
munandi tegundir fosfóráburðar kunni að hafa áhrif á uppskerumagnið.
SAMANDREGIÐ YFIRLIT.
Niðurstöðurnar, sem fengist hafa úr þessari tilraun með samanburð fosfór-
áburðartegunda, er hófst 1958, virðast mun minni en gera hefði mátt ráð fyrir
í upphafi. Þessu veldur val tilraunalandsins, bæði á Akureyri og Sámsstöðum,
en þar er um margra ára gamalt og ræktað land að ræða. Að Reykhólum hafa
kalskemmdir og sáning fræs á ný í landið haft í för með sér ójafnari gróður en
svo, að hægt sé að rekja til áhrifa mismunandi áburðartegunda. Ójafn gróður
í tilraunalandinu torveldar líka túlkun á niðurstöðum frá Sámsstöðum.
Að Skriðuklaustri er greinileg vísbending um, að þrífosfat reynist bezt, þá
fertifos og nitrofos, en steinfosfat lakast. Eftirverkanir frá því óeðlilega mikla
fosfórmagni, sem notað var alls staðar í upphafi, geta einnig valdið miklu um,
hve lítill mismunur virðist vera milli sambærilegs magns af P2O5 í þrífosfati,
fertifos og nitrofos og einnig steinfosfati á sumum stöðvanna.
Niðurstaðan verður því sú, að í Ijósi ofangreindrar tilraunar er ekki enn
hægt að draga fullkomnar ályktanir varðandi raunveruleg áhrif hinna fjögurra
fosfóráburðartegunda á gróðurinn og gæði hans.
ÖVI Úðunarkerfi
ER ÓMISSANDl FYRIR ALLA ÚTIRÆKTUN
Eina vörnin gegn kulda og þurrki.
Eina tryggingin gegn uppskeru-
bresti.— Má nota við áburðarúðun
Leitið upplýsinga hjá
einkaumboði DVI á íslandi:
Landstjarnan h.f.
Ingólfsstræti 18 — Reykjavík
Símar 15945 og 15595