Freyr

Árgangur

Freyr - 15.04.1964, Blaðsíða 26

Freyr - 15.04.1964, Blaðsíða 26
150 FRE YR arið var vökvað 6 sinnum, næstu tvö árin var aðeins vökvað einu sinni, en síðasta sumarið var vökvað tvívegis. Vökvað var aðeins þegar úrkoma var lítil. Fyrsta sum- arið jafngilti vökvunin 164 mm. regni. Uppskera Helmingur reitanna var sleginn, en á hinn hlutann var beitt. Uppskera var veg- in og efnagreind. Fyrsta árið fékkst að meðaltali um 30 hestb. í uppskeruauka fyrir vökvunina, af öllum reitum, sem fengu jafnframt áburð. En að meðaltali gáfu reitirnir, sem voru vökvaðir 7,2 hestb./ha. í uppskeruauka á ári, í þessi fjögur ár, sem tilraunin stóð, fram yfir reitina, sem ekki voru vökvaðir. Það virtist ekki skipta máli hvort mikið eða lítið köfn- unarefni var borið á reitina. Uppskera varð að vísu meiri en munur milli vökvaðra og ekki vökvaðra reita hélzt nokkurn veginn óbreyttur. Vökvunin hafði engin veruleg áhrif á efnainnihald uppskerunnar, en þó var heldur meira af steinefnum í sýnishornun- H.f. Eimskipafélag Islan'ls AÐALFUNDUR Aðalfundur H.f. Eimskipafélags íslands verð- ur haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík, föstuda.ginn 15. maí 1964 kl. 13,30. Dagskrá samkvæmt 13. grein sam- þykkta félagsins. Tiilögur til breytinga á samþykktum féiagsins samkvæmt niðurlagi ákvæða 15. gr. samþykktanna (ef tillögur koma fram). Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana 12.— 13. maí næstk. — Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á að- alskrifstofu félagsins í Reykjavík. Óskað er eftir að ný umboð ag afturkallanir eldri um- boða séu komin skrifstofu félagsins í hendur til skráningar, ef unnt er, viku fyrir fund- inn. Reykjavík, 25. marz 1964. Stjórnin >■ um frá vökvuðu reitunum, og var það fyrst og fremst hærra kalsíum innihald. Samkvæmt þessum norsku tilraunum er hagnaðurinn öruggur af vökvun ef úrkoma er lítil yfir vaxtartímann. Hvar markið er verður erfitt að dæma en trúlegt er, að ef úrkoma er undir 200 mm. yfir mánuð- ina maí—ágúst fáist verulegur uppskeru- auki fyrir vökvun. Með vatninu er hægt að tryggja jafna sprettu yfir sumarið og er það ekki þýðingarlítið þar sem kúm er beitt á ræktað land. Að sjálfsögðu ber að gera tilraunir með vökvun hér á landi, þá sérstaklega á Norð- urlandi. Ennfremur er vitað, að uppskerumiklar jurtir eins og fóðurkál borgar vel fyrir vökvun. Kartöfluframleiðendur gætu einn- ig haft gagn af að koma sér upp vökvun- arbúnaði, því vökvun getur komið í veg fyrir skemmdir af völdum næturfrosta. A.G. Lausar ríkisjarðir í næstkomandi fardögum verða nokkrar rikisjarðir lausar til ábúð- ar. Upplýsingar um jarðir þessar eru veittar í Jarðeignadeild ríkisins, Alþýðuhúsinu við Ingólfsstræti — 3. hæð. Landbúnaðarráðuneytið v Æ

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.