Freyr - 15.04.1964, Qupperneq 17
FREYR
141
FRAMLEIÐSLURÁÐ LANDBÚNAÐARINS:
INNVEGIN MJÓLK
árin 1962 og 1963 og framleiðsla mjólkursamlaganna
Hér fer á eftir skýrsla yfir inn-
vegið magn mjólkur í mjólkursamlögin
á síðastliðnu ári og um framleiðslu
þeirra á sama tímabili. Yfirlitið þarf
lítilla skýringa við; þó þykir rétt að
skýra þau með nokkrum orðum.
Skýrslan um móttekna mjólk sýnir, að
innvigtunin hefur aukizt um rúmar 6
milljónir kg miðað við árið 1962. Þetta
gerir 6.77% að meðaltali. Að magni til
hefur aukningin orðið mest hjá mjólk-
ursamlaginu á Akureyri. Þar varð aukn-
ingin 1.298.779 kg eða 7.79%. Hlutfalls-
lega hefur aukningin orðið mest hjá
mjólkursamlaginu á Egilsstöðum, svo
sem títt er hjá mjólkursamlögum, sem
nýlega hafa hafið starfsemi sína.
Aukningin hjá mjólkursamlaginu í
Borgarnesi er rösklega 1 milljón kg eða
12.23%. Mikill hluti þessarar aukningar
á vafalaust rætur sínar að rekja til þess,
að bændur í Dalasýslu hafa aukið fram-
leiðslu sína fyrir þær sakir, að hið nýja
mjólkursamlag i Búðardal er nú að
taka til starfa. Það, sem þessi skýrsla
er þó einkum athyglisverð fyrir, er, að
ávallt dregst saman mjólkurframleiðslan
í næsta nágrenni Reykjavíkur og að
aukningin hjá Mjólkurbúi Flóamanna er
hlutfallslega minni en meðaltalið fyrir
öll samlögin.
Um framleiðslu mjólkurvaranna er
þetta að segja:
Mjólkursalan hefur aðeins aukizt um
1.66% og er það heldur minni aukning
en sem nemur fólksfjölguninni á árinu
og minni aukning hlutfallslega en verið
hefur hin síðari ár.
Skyrframleiðslan hefur minnkað um
71 smálest eða 3.74%. Þetta stafar án efa
af minni heimsendingum til framleið-
enda en árið áður.
Af skýrslunni verður annars séð, að
mestur hluti aukningarinnar hefur farið
til ostagerðar og í framleiðslu á ný-
mjólkurdufti. Var hér um nauðsynlega
breytingu að ræða til þess að forðast
of miklar smjörbirgðir.
S K Ý R S L A uni framleiðslu mjólkursamlaganna árin 1962 og 1963.
Tegund framleiðslu M i s m u n u r
Árið 1962 Árið 1963 Magn %
Seld nýmjólk . Itr. 38.931.849 39.577.285 645.437 1.66
Seldur rjómi — 1.012.897 1.038.881 25.984 2.57
Framl. smjör • ■ kg 1.447.672 1.506.426 58.754 4.06
— skyr 1.915.420 1.843.751 71.669 -=- 3.74
— mjólkurostur . — 698.649 800.530 101.881 14.58
— mysuostur . — 67 638 68.725 1.087 11.61
— undanrennuduft ... . — 718.720 444.791 -=-273.929 -4-38.11
— nýmjólkurduft . . .. — 44.875 400.225 355.350 792.00
— ostaefni . — 326.651 422.040 95.389 29.20
— fóðurostur — 40.440 26.036 14.404 35.62
Mjólk í niðursuðu . — 106.728 96.480 -f- 10.248 -4-9 60