Freyr - 15.04.1964, Page 29
FREYR
153
GAS-hverfill
Verður hann aflgjafi dragans?
Hverfill — hvað er það? munu einhverj-
ir spyrja. Allir þekkja hverfistein, það er
hann sem snýst — leikur í vatni að nokkru
og verkfæri og heimilisáhöld eru á honum
brýnd. Orðið „hverfult“ þekkja menn einn-
ig, það er nokkuð sem hreyfist. Og hverfill
er af líkum uppruna, nýyrði úr tækninni,
tegund vélar, sem knúð er með gasi. Gas-
hverfillinn er staðreynd, hann hefur þegar
verið tekinn til notkunar í bifreiðum. í
venjulegum mótor fer mikil orka til spillis
í hvert sinn sem hraðabreyting verður, af
því að svo mörg hjól og aðrir málmhlutar
eru í gangi og vinna saman, en þegar gas-
hverfill er notaður gegnir öðru máli, þar er
búnaður, vélar og ganghraðabreytingar allt
öðruvísi, hreyfanlegir hlutar eru með jafn-
ari ganghraða og þola langtum betur gang-
stigsbreytingarnar.
Á einföldum uppdrætti, sem fylgir hér
með, er sýnt að afl gassins stefnir sem hér
segir: Við A sogast loftið inn, þrýstist sam-
an og nær fjórföldum þrýstingi í E, hitnar
upp í 150 stig við að streyma í gegn um C
og þegar það nær E, er það orðið 550 stiga
heitt. Með því hitastigi þrýstist það inn í
brennsluhólfið, blandast þar eldsneytinu
og í öllu kviknar, fyrst frá neistagjafa og
Nokkrir drættir, er sýna hluta gas-hverfils, sem
Chryslerverksmiðjurnar framleiða nú.
logandi loftblandan breiðir sig um sprengi-
hólfið. Brennandi lofttegundin (gasið)
þrýstist nú áleiðis í gegn um hverfilinn
(túrbínuna), sem knýr þéttinn B og að
nokkru fer gasstraumurinn um annan
hverfil, sem knýr hjól ökutækisins. Nokk-
ur hluti orkunnar fer til þess að veita loft-
hitaranum varma við E og útstreymisloft-
ið verður því aðeins 85 stiga heitt
Talið er að þessi eða álíka gerð gas-hverf-
ils muni í náinni framtíð verða algengur
aflgjafi í ökutækjum og gera aflvélakerfi
þeirra mun einfaldara en nú gerist, en þó
öruggara og ódýrara í rekstri.
Við skulum vona að þetta reynist rétt.
FJÖLFÆTLAN
fæst aðeins frá
ÞÓR HF. Reykjarvík