Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.04.1964, Qupperneq 30

Freyr - 15.04.1964, Qupperneq 30
154 FREYR 1 MARZMÁNUÐI kom hingað til lands erlend ílugvél til þess að sækja um 70 hross, er seld voru og flogið með beina leið til Sviss. Það er varla efi á, að mark- aður fyrir íslenzk hross erlendis er framundan ef þess verður vel gætt að selja úr landi valdar skepnur og tamdar, en á erlendum markaði er alltaf talið sjálfsagt að hross séu tamin að meira eða minna leyti, því að þar eru þau gerð bandvön strax sem folöld. Um öll lönd fer hrossum fækkandi en sam- tímis eykst þátttaka þeirra í allskonar sport- mennsku og virðist það verksvið og hlutverk framundan, og má líklegt telja, að hægt sé með ræktun og þjálfun að skapa vel hæfa íslenzka stofna til þeirra hlutverka. STOFNLÁN ADEILD Búnaðarbankans hefur auglýst eftir tilkynning- um frá bændum um framkvæmdir þær, sem fyrirhugaðar eru á árinu og lán þurfi að veita til. Fyrir 15. apríl skyldu tilkynningar þessar komnar og þeim skyldu fylgja upplýsingar um búnaðarástand þeirra jarða, sem um er að ræða hverju sinni, viðurkennt og vottfest af héraðsráðunaut á hverjum stað. Umræddar ráðstafanir munu gerðar í þeim tilgangi, að forráðamenn bankans geti í tæka tíð fengið nokkra hugmynd um hve mikið fjármagn Stofnlánadeildin þurfi að hafa til umráða til þess að geta sinnt lánabeiðnum, samkvæmt þeim lögum og reglum, er þar að lúta. SAUÐFÉ FJÖLGAR á Nýja Sjálandi. Síðasta talning sauðfjár þar leiddi í ljós, að fjárfjöldi var 50,1 milljón og var það 2Vz% fleira en árið áður. Ærnar voru 35 milljónir og var það 3% hærri tala en árið 1961. Það fylgir fregninni um sauðfjártöluna, að fjölgunin stafi af hækkandi ullarverði og tiltölulega góðu verði á öllum afurðum. HÆKKANDI SYKURVERÐ um undanfarna mánuði stafar af því, að upp- skera þeirra jurta, sem sykur er unninn úr, hefur ekki nægt til þess að fullnægja neyzlu- þörf heimsins. Þetta hefur aftur leitt til þess, að sykurrófur verða nú ræktaðar á stærra land- svæði í Evrópulöndum en áður. Danir t. d. ætla að auka sykurrófnaakra um 14% í ár. Hið sama er að segja um Hollendinga. Þar hefur ræktun sykurrófna farið minnkandi ár frá ári eins og hjá Dönum og verksmiðjurnar hafa staðið ónotaðar. í fyrra voru sykurrófur ræktaðar þar á 175 þúsund ekrum en í ár á 216 þúsund ekrum. Síðastliðið ár framleiddu Hollendingar 500 þúsund lestir af sykri og fluttu inn 150 þúsund lestir. Ef góð uppskera verður í ár gera þeir ráð fyrir að geta fullnægt heima- þörfum að mestu. Með vaxandi sykurframleiðslu í ýmsum lönd- um ætti aftur að komast á jafnvægi milli fram- boðs og eftirspurnar og verðið þannig að fær- ast í eðlilegt horf. FOSFÓRÁBURÐUR Vert er að benda á, að í þessu hefti FREYS er aðalgreinin um mjög þýðingarmikið atriði, fosfóráburðinn og hagnýtingu hans. Höfundur- inn, dr. Bjarni Helgason, sérfræðingur við At- vinnudeild Háskólans, áður kunnur lesendum blaðsins, mun flestum fróðari hérlendis — ef ekki öllum — um fosfóráburð almennt. I grein þessari rekur hann þau atriði, er varða notkun fosfóráburðar og árangur þeirra, samkvæmt niðurstöðum tilrauna hérlendis. Er rétt að benda bændum á að lesa um þessa hluti gaum- gæfilega. Aukin þekking á hvað gert hefur verið og gera ber, þegar rækta skal land og nota áburð réttilega, er auðvitað hagrænt spursmál. Grein þessi mun rituð með hliðsjón af inn- flutningi blandaðs fosfórburðar, sem á mark- aði verður í ár í miklu stærra mæli en áður hefur gerzt. GEITFÉ má ekki verða aldauða á íslandi. í vetur voru ekki 100 geitur á fóðrum.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.