Freyr

Volume

Freyr - 01.06.1966, Page 5

Freyr - 01.06.1966, Page 5
FREYR 267 FREYR BÚNAÐARBLAÐ Nr. 11-12 — jún! 1966 62. árgangur Útgefendur: BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS STÉTTARSAMBAND BÆNDA Utgáfustjórn: EINAR ÓLAFSSON HALLDÓR PÁLSSON PÁLMI EINARSSON Ritstjórn: AGNAR GUÐNASON GÍSLI KRISTJÁNSSON (ábyrgðarmaður) Heimilisfang: PÓSTHÓLF 390, REYKJAVÍK BÆNDAHÖLLIN, REYKJAVÍK Prentsmlðja Jóns Helgasonar Reykjavík - Síml 38740 Rltstjórn, Innhelmta, afgrelðsla og auglýslngar: Bœndahöllinni, Reykjavík — Sími 19200 EFNI: Uppskera og hungur Dráttarvélar hf. Kögglað kjarnfóður Fyrning útihúsa Heimilismjólkurtankar Byggingar og búskapur Varnir gegn kálmaðki Grasflötin Verkun gróffóðurs Þjóðsögur, œvintýri og list Molar Uppskera og hungur Þœr fregnir berast utan úr heimi, að hundruð milljónir manna svelti heilu hungri og vannœring valdi ýmsum veilum í hundruðum milljóna þar að auki. Svona hefur þetta raunar ævinlega verið, um allar aldir. Við fréttum bara meira en áður um hvað gerist hinumegin á hnettinum, sími og útvarp segja frá hlutum, sem engir aðrir en áhorfendur vissu um fyrr. Hitt er annað mál, að fjölgun íbúa heimsins er ör og sjálfsagt svelta fleiri en fyrr, en vafasamt að hlutfallstalan sé hærri. Það var líka einu sinni, að ekki þurfti mikið að bera út af með árferði á íslandi svo að sultur berði að dyrum, og hungurdauði heimsækti fólk hér og þar. Þá var þó miklu færra fólk á íslandi en nú. Norskar söguleg- ar staðreyndir herma, að á sautjándu öldinni hafi mað- ur einn í Kongsberg komið á skrifstofu fylkismannsins og óskað þess að mega lífláta börn sín tvö, fjölskyldan hafði af engu að nœrast og enginn var aflögufœr, sem hann þekkti, fólk var vannært og vistalaust það sem hann þekkti til, enda hrundi það niður úr hungri sum ár í Noregi um þær mundir. Svona hefur þetta verið viða, eins þegar miklu færra fólk byggði löndin en nú gerist, en tœkni nútímans hefur snúið þessu alveg við. Þar sem hún hefur verið gjörnýtt, svo sem er hér í Norðurálfu, er nú matvendni ráðandi og matur að litlu metinn. Hann safnazt fyrir og veldur vanda af ýmsu tagi. Á sama tíma svelta heilar þjóðir, sem ekki hafa lœrt að nýta tæki og tækni nútímans til þess að hraða hringrás efna þeirra, sem nóg er af í jörðu og yfir henni og nœrt getur mörg- um sinnum meira líf, en nú ríkir á þessum hnetti okkar. Danski læknirinn og næringarfræðingurinn Hindhede hélt því fram, að hver íbúi í hans landi gæti lifað og nærzt af 100 fermetrum lands, að sjálfsögðu með því að lifa af jurtafæðu eingöngu. Segjum bara að 5—10 sinnum þessi landsstærð væri nær sanni. Og segjum, að heitari svæði hnattarins gœti gefið talsvert meiri eftirtekju en fœst af hverri flatareiningu í Danmörku, til þess þarf bara vatn, áburð og svo mannlegt vit. Nýting náttúruauðævanna ræður mestu um hvort fólk sveltir eða er ofnært. Því skal spáð hér, að þegar íbúar íslands verða ein milljón verði lifað hér miklu betra lífi en var þegar voru 60 þús- undir og fólk dó úr hungri. G.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.