Freyr - 01.06.1966, Blaðsíða 6
268
FREYR
Búvéla-innflytjendur heimsóttir: IV.
DRÁTTARVÉLAR!
Fyrirtækið Dráttarvélar hf. var stofnað 15.
marz 1949, af Sambandi íslenzkra sam-
vinnufélaga, sem hlutafélag, því S.Í.S. gat
ekki fengið urnboð fyrir Ferguson dráttar-
vélarnar, þar sem það hafði umboð fyrir
International Harvester. Til að hdlda báð-
um umboðunum var þetta dótturfyrirtœki
Sambandsins stofnað. Dráttarvélar hf. er
sjálfstætt fyrirtæki, sem rekið er í anda
sannrar samkeppni við alla aðra innflytj-
endur landbúnaðarvéla og verkfæra. Fyrsti
framkvœmdastjóri Dráttarvéla hf. var
Hjalti Pálsson, en núverandi framkvœmda-
stjóri er Baldur Tryggvason, en hann starf-
aði áður hjá Samvinnutryggingum og sem
fulltrúi Erlendar Einarssonar, forstjóra
S.Í.S.
Við rœddum lítillega við Baldur fyrstu
dagana í maí í vor, um innflutning búvéla
og ýmislegt fleira.
— Hvað er margt starfsfólk hjá fyrir-
tækinu nú?
— Hjá okkur starfa um 20 manns, það er
hér á aSalskrifstofunni, Suðurlandsbraut 6,
varahlutalagernum á Snorrabraut 56 og á
standsetningarverkstæðinu við Kleppsveg
og svo í verzluninni í Hafnarstræti 23.
— Er innflutningur á vegum fyrirtækis-
ins ekki alltaf að aukast?
— Jú, að sjálfsögðu, fyrirtækið er í stöð-
ugum vexti, sem betur fer. Upphaflega var
eingöngu um Ferguson dráttarvélar að
ræða og hjálpartæki við þær, en síðan höf-
um við fengið umboð fyrir ýmsa stóra og
Baldur Tryggvason, framkvœmdastjóri.
viðurkennda framleiðendur á ýmsum svið-
um.
— En hafið þið ekki verið með minni bú-
vélar?
— Nei, við höfum ekki verið með sér-
hæfð verkfæri. Það er nú fyrst og fremst
vegna þess, að við höfum ekki verið með
lærðan starfsmann á þessu sviði, fyrr en nú,
að til okkar réðist um síðustu áramót Þor-
geir Elíasson, búfræðikandidat, svo að við
stöndum vel að vígi með að hefjast handa
og flytja inn fleiri tegundir búvéla og verk-
færa.