Freyr - 01.06.1966, Page 7
FREYR
269
Massey-Ferguson 135. Ferguson dróttarvélar, hafa verið mest seldu vélarnar mörg undanfarin ór, hér á landi.
— Hvað eruð þið með margar gerðir af
dráttarvélum nú?
— Aðallega er um fjórar stærðir að ræða.
MF 130, sem er 32 hö, og kostar hún 106 þús.
kr., MF 135, 46 hö á 126 þús. kr., MF 165, 58
hö á 160 þús. kr. og MF 175, sem er 66 hö og
kostar 183 þús. kr. Allar dráttarvélarnar
eru með öryggisgrind.
— Hafa verið gerðar verulegar breyting-
ar á Ferguson dráttarvélunum nýlega?
— Síðustu verulegu breytingarnar voru
gerðar árið 1964. Þá breyttu dráttarvélarn-
ar að mestu um útlit, auk þess sem margvís-
legar breytingar voru gerðar á tæknibún-
aði þeirra. Nú er vélin miklu öruggari í
gangsetningu en áður, það er að þakka
beinni olíuspýtingu. Útbúnaður fyrir aflúr-
tak er til hliðar á MF 130 og 135 dráttarvél-
unum, auk þess sem er að aftan. Nýtt upp-
lýst mælaborð var sett í dráttarvélarnar
með öllum helztu mælum, t. d. eldneytis-
mæli, sem er nú á MF 135, MF 165 og MF 175
dráttarvélunum svo auðvelt er að fylgjast
með eldneytiseyðslunni. Allar dráttarvél-
arnar eru með innbyggðum framljósum.
Ýmsar aðrar mikilsverðar breytingar voru
gerðar á dráttarvélunum. Þá má geta þess,
að í nokkur ár höfum við selt iðnaðardrátt-
arvélar, sem eru með sjálfskiptingu, en á
því sviði var Ferguson á undan öðrum.
— Þið flytjið alltaf inn eittlnvað af not-
uðum dráttarvélum?
— Já, en það er lítið um það nú orðið.
Árið 1960 hækkuðu dráttarvélar það mikið