Freyr - 01.06.1966, Side 10
272
FREYR
Starfsmenn á varahlutalager. Frá v. Sig-
urgeir Jónsson, Björn Jónasson og Ing-
ólfur Sigurjónsson, afgreiðslustjóri.
Þessi þrjú atriði hafa komið í veg fyrir
eðlilega fjármagnsmyndun í varahluta
verzluninni, sem hefur leitt til þess, að
varahlutaþjónustan getur ekki orðið nægi-
lega góð. Erfiðleikarnir eru miklu meiri hjá
fyrirtækjum, sem verzla nær eingöngu með
búvélar en hinum, sem eru með blandaða
verzlun.
Hjá okkur er sala búvéla og varahluta til
þeirra um 70-80% af heildarsölunni. Það
Karl Jónsson, hann sér um, að spjaldskróin sé
rétt fœrS.
ætti skilyrðislaust að leyfa hærri álagningu
á varahluti í búvélar en í iðnaðarvélar og
í bifreiðir. Ég tel að með þessu sé verið að
hlunnfara bændur, miklu fremur en fyrir-
tækin. Eins og er, þá rekum við varahluta-
söluna með tapi. Það hefur í för með sér,
augljósa erfiðleika, m. a. í samkeppninni um
vinnuafl, sem aldrei hefur verið meiri en
nú. Við höfum athugað þann möguleika að
fá vélaframleiðendur til að hafa varahluti
í tollvörugeymslunni, en það hefur ekki
tekizt, og ekki er útlit fyrir að það muni
takast, enda ekki hægt um vik fyrir þá.
Ef bændur athuguðu það snemma á árinu
hvaða hluti þyrfti að endurnýja í vélunum
og sendu okkur pantanir eins snemma og
tök væru á, þá mundi það auðvelda okkur
mikið afgreiðsluna. Oft koma pantanir
ekki fyrr, en á að fara að nota vélarnar,
þótt vitað væri, að þær hefðu þurft endur-
nýjunar við. Einnig eru pantanir mjög ó-
ljósar, það vantar oft framleiðslunúmer
dráttarvélarinnar, aðeins beðið um ákveðið
stykki í Ferguson vél, keypta á þessu eða
hinu árinu. Númer dráttarvélarinnar er á
lítilli plötu fyrir neðan stýrið, ef þetta núm-
er væri ávallt gefið upp, um leið og pantað
er, mundi það spara okkur mikið erfiði og
bændum vonbrigði.
Við mundum vilja hafa þjónustuna miklu
fullkomnari, t. d. tókum við fyrstir manna