Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.1966, Blaðsíða 14

Freyr - 01.06.1966, Blaðsíða 14
276 FREYR um fullblandað fóðurmjölið um leið og það gengur í gegnum kögglunarvélina, sem pressar það í gegnum hringlaga gataplötur. Úr pressunni koma kögglarnir heitir og fara í kögglalyftu inn í kæli og þaðan til af- skekkjunarvélar. Kögglarnir eru 4.5 mm í þvermáli, sem er hæfilegt fyrir varphænur, en hægt er að minnka þá með því að láta þá á leiðinni fara í gegnum sérstakan tætara. Afköst kögglunarvélarinnar eru 5 tonn á klst. Að svo komnu er það aðallega varpfóðrið, sem Mjólkurfélagið hefur byrjað að köggla, en síðar kemur væntanlega einnig til greina kögglun á fleiri kjarnfóðurtegundum. Verð á köggluðu kjarnfóðri er um 5% hærra en á mjöli. Talið er að nýting köggla sé um 10 % betri en fóðurmjöls. Mjólkurfélag Reykjavíkur var stofnað ár- ið 1917 og er því 50 ára á næsta ári. Eins og' kunnugt er, var það brautryðjandi hér á landi um mjólkurmeðferð og sölu á grund- velli nýrrar hreinsunar- og gerilsneyðing- artækni, en mjólkurstöð þess var reist 1920, og önnur fullkomnari 1930. Árið 1930 kom það einnig upp fóðurblöndunarstöð með fullkomnum vélum eftir því sem þá var, þótt nú sé önnur fullkomnari tækni tekin við. Félagið er samvinnufélag, og eru félags- menn þess bændur á svæðinu sunnan Skarðsheiðar og vestan Hellisheiðar að meðtöldum höfuðstaðnum. En annars hefir það jafnan átt mikil viðskipti um allt land og flestir landsmenn munu kannast vel við það. Stjórnarformaður Mjólkurfélags Reykja- víkur er Ólafur Bjarnason, Brautarholti, en aðrir stjórnarmenn eru Jónas Magnússon, Stardal, Erlendur Magnússon, Kálfatjöm, Ólafur Andrésson, Sogni og Sigsteinn Páls- son, Blikastöðum. Framkvæmdastjóri er Leifur Guðmundsson. Guðbrandur GuSmundsson, viS sekkjunarvélina. Hann hefur starfaS hjó MR í 30 ór.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.