Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.1966, Blaðsíða 23

Freyr - 01.06.1966, Blaðsíða 23
FREYR 285 Sláttur grasflatar einu sinni til tvisvar í viku verður að teljast góð hirðing. Þess skyldi þó gætt að slá ekki of oft þegar þurrt er, ella þornar jarðvegur hraðar. Þegar fyrsti sláttur hefst að vori, borgar sig að stilla sláttuvélina nokkuð hátt (1—8), og síðan smám saman lækka hana þannig að hún slái í ca. 4 cm hæð frá yfirborði. Að slá að staðaldri mikið sneggra, er til óbóta fyrir grasrótina. Þegar grasflöt er oft slegin og afklippan er stutt, sakar ekkert, þótt hún sé látin liggja á flötinni, Sé afklippan löng eða ef slegið er í vætu, er bezt að raka grasið saman og fjarlægja það. Þótt borinn sé áburður á grasflötina strax að vori, eins og minnizt var í upphafi, er nauðsynlegt að bera aukalega N-efni 2—3svar yfir sumar- tímann þar sem grasflötin er slegin reglu- lega og jafnvel mikið vökvuð að auki til þess að halda henni í sem örustum vexti. Góður N-áburður í þessum tilgangi er kalk- saltpétur, eða þá kalkammonsaltpétur. Hóf- legt magn á 100 m2 flöt er 2,5-3 kg í hvert sinn, sé notaður kalksaltpétur. Sé ekki um annað en Kjarna að ræða, þá er hæfilegt að nota 1,0-1,4 kg. Rétt er að vökva áburðinn vel niður (20-30 1 vatn m2), eða gæta þess að bera hann á, þegar góð skúr er í vændum. í miklum þurrkum er nauðsynlegt að vökva flestar grasflatir við og við, skal þá vökvað vel í hvert sinn. Til vökvunar má fá margvíslegar gerðir af handhægum dreif- urum, sem settir eru framan á slöngur. Nýsáning: Ýmsir úti á landsbyggðinni munu vera með lóð eða blett umhverfis húsið, sem ætlun- in er að sá í nú á næstunni. Það er áríð- andi að sá snemma á meðan nægur raki er í moldinni; því jafnari og betri verður þá spírun og byrjunarvöxtur. Það er enn- fremur áríðandi að undirbúa svæðið und- ir grasflötina vandlega. Að góðum undir- búningi býr grasflötin lengi. Mjög marg- ir kasta allt of mikið til höndum við þetta verk, þar eru ekki sízt sumir faglega lærðir menn brotlegir. Það, sem í fyrsta lagi þarf að athuga áður en nýsáning hefst, er, hvort þörf sé á framræslu. Þegar gengið hefur verið frá því verki, er næst að hreinsa burt steypu- rusl og önnur óhreinindi, sem kunna að vera á stykkinu. Oft er mikið um slíkan úrgang umhverfis nýbyggingar, og mjög óheppilegt að fá hann saman við gróður- mold. Þurfti að flytja gróðurmold á stykk- ið, er það fyrst vandlega jafnað, moldin losuð t. d. með herfi. Þetta verk er mjög nauðsynlegt þar sem jarðvegur hefur press- azt saman með ýmsu móti. Að þessu loknu má hefja þann moldarflutning á svæðið, sem nauðsynlegur er talinn. Fyrir gras þarf gott gróðurmoldarlag að vera a. m. k. 20 cm þykkt. Sé gróðurmoldin efnasnauð, verður að bera í hana næringar- efni eftir því sem þörf þykir. Margir forðast notkun búfjáráburðar við grasflatagerð vegna aukinnar illgresishættu. Slíkt kann í sjálfu sér að vera í lagi, hins vegar leikur ekki nokkur vafi á því, að sé jarðvegur mjög dauður, verður hann fyrr frjósamur af búfjáráburði heldur en tilbúnum áburði eingöngu. Með 400—600 kg af gömlum gerj- uðum búfjáráburði pr. 100 m2 ásamt 6—10 kg af garðáburði ætti þörfum gróðursins í flestum tilfellum að vera fullnægt fyrst í stað. Áburðurinn þarf að blandast vel sam- an við moldina, þegar vinnsla hennar er framkvæmd. Sé jarðvegur torfkenndur og talinn súr, er í flestum tilfellum einnig nauð synlegt að bera í hann eitthvað af kalki; 50—100 kg af skeljakalki á 100 m2 getur ekki sakað. Eftir að vinnslu er lokið, sem vanda þarf sérstaklega vel til, er næst að troða svæðið eða valta það eða dældir í jarðveg- inn síðar meir, þannig að ekki komi fram missing. Hér verður umfram allt að geta þess, ef notaður er valtari, að pressa ekki jarðveginn of mikið saman. Sé svæðið lítið, er einfaldast að troða það með hælunum, á hinn bóginn er það töluvert verk, sem fæst-

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.