Freyr - 01.06.1966, Blaðsíða 27
FREYR
289
ÞJÓÐSÖGUR ÆVINTÝRI
OG UST
7)olmn hennari _L.au jphöpiu,
Þessi teikning er aj einu smáatriði úr löngu
ævintýri um Geirlaugu og Græðara; það
ævintýri fengu þjóðsagnasafnarar vestan
úr Dalasýslu, og yrði of langt að rekja sög-
una hér, enda er það teikningin, sem máli
skiptir að sinni. Bolinn gúknar yfir allri
myndinni, heldur en ekki ferlegur og meira
af kyni Þorgeirsbola og annarra vætta en
hversdagslegs nautpenings. Lauphöfða kon-
ungsdóttir í skemmudyrum sínum og Grœð-
ari konungsson, sem í halann heldur, svo og
landslagið allt — sem reyndar er íslenzkt
eins og listamaðurinn, þótt sagan gerist úti
í löndum — allt þjónar þetta hinum þrjózka
og tasvíga tudda, að hans vegur megi verða
sem mestur. Þannig er myndin byggð, en
skopskynið gœðir hana lífi, hið alþýðlega
gaman þjóðsögu og ævintýrs, frumstætt í
eðli, en um leið einfalt og sterkt.