Freyr - 15.08.1968, Blaðsíða 30
stöðugt á fartinni út um lönd á fundum og í
kynnisförum, léttur í spori en þó einkum
frár í andlegum athöfnum og ungur í við-
horfum, þegar hann leggur upp í langferð
hins níunda tugar lífsins.
Bretar hafa átt sinn frána öldung, er hét
Churchill'. Frakkar eiga sinn staðfasta de
Gauile. Við íslendingar eigum okkar Pétur
Ottesen og heill fylgi honum er hann renn-
ur næsta áfanga á skeiðvelli níunda tugar-
ins, starfsglaður og vökull á borð við þá,
sem enn eru ungir.
Minna má það ekki vera en að Freyr
sendi honum kveðjiu þó að hún nái ekki til
Finnlands, en þar situr hann fund nor-
rænna bændasamtaka á áttræðisafmælinu.
G.
A/Of-A R
Stangveiðifélag Reykjavíkur
starfrækir eldisstöð fyrir lax við Elliðaámar hjá
Reykjavík. í aprílmánuði s. 1. bar talsvert á tþví, að
seiði drápust o,g kom í ljós, að þar var um kvilla að
ræða of af upphaflegu magni 13000 seiða var að
lokum lógað síðustu þúsundunum og sótthreinsun
framkvæmd því að hér var næmur sjúkdóm á
ferð. Virtist að hér væri um að ræða kvilla, er er-
lendis gengur undir heitinu „kidney diseas“, sem
talinn er sjaldgæfur. Er þess helzt getið til, að smit-
ið hafi borizt í eldisstöðina í flóðum síðla vetrar
þegar stórflóð .gerði í Elliðaám og bar með sér áburð
og aðra menganir frá hesthúsum og mannabústöð-
um upp með ánum.
ÁNýjar
DEUTZ-dráttarvélar.
DEUTZ
DEUTZ 06.
Á landbúnaðarsýningunni 1968 kynnir h.f. Ham-
ar hinn nýja 06-flokk dráttarvéla frá DEUTZ.
í þeim flokki er samankomið allt það, sem tækni-
vísindin í dag hafa að bjóða af hagnýtum og
raunhæfum nýjungum fyrir dráttarvélar. A bú-
vélasýningum í Evrópu í vor hafa einmitt þess-
ar vélar vakið mesta athygli og eflaust munu
íslenzkir bændur fjölmenna á sýningarsvæði
Hamars til að kynnast strax þar nýju dráttar-
vélunum frá DEUTZ.
Alls framleiða DEUTZ-verksmiðjumar nú átta
stærðir hinna nýju 06-dráttarvéla, frá 25 hö til
100 hö að stærð. Þær eru D 2506, D 3006, D 4006,
D 5006, D 5506, D 6006, D 7506 og D 9006. Á Land-
búnaðarsýningunni ’68 kynnir h.f. Hamar fjórar
nýju vélanna, eða D 3006, D 4006, D 5006, og
D 6006, þar af tvær, D 4006 og D 6006 með fram-
hjóladrifi, en einnig aðrar stærðir eru fáanlegar
þannig búnar.
Ný hreyfilgerð er í 06-dráttarvélunum, F1 912,
sem að sjálfsögðu er loftkæld og sú sama í öllum
stærðarflokkum. f minnstu dráttarvélunum er
tveggja-strokka hreyfill, en 6 strokka eru í
þeim stærstu. FL 912 hreyfillinn er með beinni
innspýtingu og er um 10% aflmeiri en eldri
gerðin, hin góðkunna FL 812-gerð. DEUTZ-drátt-
arvélarnar I 06-flokknum fá auk þess algerlega
nýtt útlit og samræmist þar á snjallan hátt
tæknilegar þarfir og útlitslínur í anda sam-
tímans.
Nokkur höfuðeinkenni nýju dráttarvélanna
eru þessi:
1. Nýr, loftkældur dieselhreyfill með beinni
innspýtingu.
2. Meiri hreyfilafköst.
3. Samhæfður (sýnkróníseraður) gírkassi fáan-
legur.
4. Nýtt, tveggja-hraða aflúrtak (540 og 1000
snún/mín).
5. Aflmeira og endurbætt DEUTZ-Transfer-
matik-vökvakerfi.
6. Framhjóladrif fáanlegt á allar stærðir (fjór-
h jóladrif).
7. Meiri fastabúnaður (standard-búnaður).
8. Aukin þægindi fyrir ökumann.
9. Einfaldara viðhald.
10. Aukin verkhæfni með nýju byggingarlagi.
Að sjálfsögðu er innbyggt vökvastýri fáanlegt
í nýju vélarnar, svo og margvíslegur búnaður
eftir þörfum viðskiptavina.
S=
366
F R E Y R