Freyr

Volume

Freyr - 01.11.1968, Page 6

Freyr - 01.11.1968, Page 6
Heimafengna fóðrið hlýtur alltaf að vera þungamiðja þess forða, sem sérhver bóndi þarf að nota vetrarlangt. Með kynbótum búfjár er að því unnið að efla afurðahœfni þess, en aldrei verður hún nýtt til fulls nema nægilegt fóður sé til, sem skepnurnar breyta í mjólk eða kjöt. Afurðasælir gripir þurfa talsvert til viðbótar heyfóðrinu en heyið er og verður alltaf grundvallarfóðrið, hvort sem það er þurrt í hlöðu og stakk eða vott í votheysturni. En hve mikið skal ætla hverri skepnu vetrarlangt og hve mikið hey er í hverri hlöðu og hverjum stakk, þar er bœndanna og forðagæzlumannanna að meta og vega. Ýmsir forðagæzlumenn hafa að undan- förnu beðið um nánari skýringar á forða- mati en þeir hafa fengið til þessa. Um það má segja, að gildi fóðursins er breytilegt frá bœ til bæjar og líka á sama bænum. Það fer eftir því hvenær grasið var slegið, hve sprottið var við slátt og hvernig verkun varð við inntöku og í hlöðu. Meginmagn heysins er nú taða. Síðan áburðarnotkun varð svo mikil sem raun er á og verkunaraðferðir hafa batnað gerum við ráð fyrir, að í hverja fóðureiningu (F.E.) þurfi að meðaltali 2 kg töðu. Nú er það svo, að í stabba í hlöðu eða tóft er mismikið hey í hverjum m3. Við vigtun á nokkrum stöðum hefur það sýnt sig, að þetta er breytilegt, frá 90 kg og allt upp í 120 kg, en það segir okkur, að magn fóðureininga sé þá frá 45 til 60 í rúmmetr- anum. Getur jafnvel farið bæði niður fyrir og upp fyrir þessi mörk. Svo sem allir munu vita er fóðureiningin samnefnari fyrir gildi fóðurs eins og krónan er verðmælir. Þegar forðagæzlumaður hefur mælt hey- birgðir bónda á haustnóttum og fengið rúm- metrafjöldann reiknaðan, kemur næst til kasta hans og bóndans í sameiningu að meta allt til fóðureininga. Hjá sumum er sumt af heyinu laust í hlöðu, gróf og máske hrakin síðslœgja. Má vera að þar séu aðeins 40—45 fóðureiningar í rúmmetra. Annarsstaðar getur heyið verið fíngert, vel verkað og mjög fast í stabba. Þar getur magn fóður- eininga jafnvel komist yfir 60 í rúmmetra. Þegar búið er að meta forðann til fóður- eininga er næst að athuga hve langt hann hrekkur þeim bústofni, sem bóndinn hyggst fóðra vetrarlangt. Að undanförnu höfum við ætlazt til, að fyrir hverja kú sé lagt 1.800 fóðureiningar af heyi. Þetta er auð- vitað ekki nóg þegar kýrnar standa inni um eða yfir 40 vikur. Hver kýr þarf til viðhalds og fóðurmyndunar allt að 4 F.E. á dag og sé um að ræða 280 daga innistöðu gerir það yf ir 1100 fóðureiningar. Eftir eru þá tæpar 700 til mjólkurfarmleiðslu eða sem svarar til þess að búa til rúmlega 1700 kg af 4% feitri mjólk. Snemmbœrum hrekkur því ekki umrætt fóðurmagn, en þar sem bænd- ur hafa vorbærur fyrst og fremst má vera að 1600—1700 fóðureiningar af heyi sé nægi- legt handa kúnni. Þetta verða forðagæzlu- menn að taka með í reikninginn þegar á vetur er sett. Ennþá meiri sveiflur eru um að ræða að því er snertir sauðféð. Eftirlitið hefur gert ráð fyrir, að meðalþörf heys sé um 110 F.E. á kind. Frávikin eru víða mikil frá þessu magni, að minnsta kosti í eðlilegu árferði. Það er víst, að í heilum sveitum er meðal- notkun fóðurs stundum 130—150 F.E. á kind, einkum þar sem margt er tvílembt, annarsstaðar er notkunin 50—70 F.E. á kind og jafnvel enn minni, en oftast er þá ein- hverju ábóta vant í fóðrun og meðferð þeg- ar svo lítið er notað af heyi. Á beztu út- beitarjörðum, í meðalári eða betra, getur þó verið hagkvæmt að nota kraftfóður með beitinni og spara heyið. Svo eru það hrossin. Þau eru enn sári bletturinn á búfjárbúskapnum ,og þar sem margt er hrossa er alltaf mikið í hættu þegar fóður er af skornum skammti. Hvert fullorðið hross þarf um eða yfir 3 fóður- einingar á dag til viðhalds. Margföldum dagafjöldanna, sem áætlað skal að hross séu á fóðrum, með þessari tölu og sjáum hvað kemur út. Eftirlitið hefur árlega gefið sín fyrirmœli um áætlun heyforða handa 428 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.