Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.1968, Síða 19

Freyr - 01.11.1968, Síða 19
Grundvallarlega er því nauðsynlegt að búa vel að vali ræktunarlands, ræsingu þess, kýfingu, allri vinnslu og áburðarnotk- un og þá er næst þýðingarmikið að velja og hafa völ á góðu grasfræi sem hentar að- stæðum og tilgangi nýræktunarinnar, hvort heldur ræktað er til heyskapar eða til beit- ar. Nú er langt frá því, að kalvandamálið sé til lykta leitt, en rannsóknum, sem að þessu lúta er hins vegar haldið áfram á vegum Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins og er meðal annars stefnt að því að velja þolnar grastegundir af íslenzkum efniviði, sem síður er kalhætt. Nokkrir erfiðleikar eru á því að ákvarða frostþolseiginleika grastegunda og stofna þeirra í útireitum á tilraunastöðvum, því ekki viðrar þannig árlega, að þar sé kals að vænta. Á erlendum tilraunastöðvum eru þar til gerð vaxtar- og frystitæki til þess að valda kali, svo unnt sé að meta frostþolshæfni hinna einstöku grasa, sem nota skal til und- aneldis. Svipuð tæki myndu hafa ómetan- legt gildi fyrir grasakynbætur hér á landi og auðvelda áframhaldandi rannsóknir á kali. Nú er í ræktun á tilraunastöð Rannsókn- arstofnunar landbúnaðarins, að Korpúlfs- stöðum, mikið safn einstaklinga af ýmsum íslenzkum grastegundum. Hefur uppskera þeirra og ýmsir aðrir eiginleikar verið bornir saman innbyrðis og við erlenda stofna. Enda þótt útbúnaður sé ekki fyrir hendi til frostþolsmælinga hefur þó fengizt marg- vísleg reynzla á, að íslenzku stofnarnir eru mun frostþolnari hinum erlendu. Þannig hafa tilraunir með túnvingul sýnt, að þar sem hann er ræktaður í hálendi landsins er hann mun harðgerðari danska vinglinum, sem notaður er til ræktunar hérlendis, einn- ig hefur snarrótin hvarvetna reynst harð- gerðari erlendum tegundum, og er reyndar alkunnugt að snarrótin er eina grastegund- in, sem að einhverju leyti stendur af sér kalið. Þess vegna beittum við okkur fyrír því að safnað væri fræi af snarrót og það haft til sölu. Er nauðsynlegt að því sé haldið áfram. Ég tel það orðið mjög aðkallandi að lögð sé aukin áherzla á rannsóknir á frostþoli og uppsekruhæfni grasstofna, sem nota á til ræktunar túna og beitilanda hér á landi. Þegar ræktun túna með sáningu var haf- in hér á landi um síðustu aldamót, var það ein mótbára gegn þeirri ræktun, að ekki væri til fræ nægilega harðgerðra tegunda til sáningar. Þrátt fyrir það varð stórfelld túnastækkun framkvæmd með notkun er- lends grasfræs. Þessar erlendu grastegundir hafa reynzt misharðgerðar og átt misvel við íslenzka staðhætti. Til dæmis voru á síðari heims- styrjaldarárunum nýræktir gerðar af amer- ísku grasfræi, sem átti illa við hérlendar ræktunaraðstæður. Á síðari árum hefur grasfræ verið flutt inn frá Norðurlöndum, en þar er völ á fræi misþolinna stofna og tegunda. Hefur það verið eitt viðfangsefni Rann- sóknarstofnunar landbúnaðarins að velja úr því magni þá stofna, sem þrífast bezt hér á landi og gefa innkaupastofnunum upp- lýsingar um þær niðurstöður. Þýðing þeirra rannsókna er mjög mikil- væg því miklu getur munað á uppskeru ný- ræktar, eftir því hvort harðgerir stofnar hafa verið valdir. Samanburður á uppskeru einstakra stofna leiðir í ljós, að um tífaldan uppskerumun getur verið að ræða í nýrækt, eftir því hvort notaður er harðgerður eða lingerður stofn sömu grastegundar. í á- framhaldi af þessu vali á hentugu grasfræi hefur það verið verkefni okkar að safna efnivið í íslenzka fræstofna. Úrval af ýms- um helztu nytjagrösum hefur verið gert á undanförnum árum og hefur stofnfræi ver- ið komið til framræktunar erlendis. Er því væntanlegt fræ af íslenzkum grastegund- um. Þannig koma á markað árið 1969 um 11 tonn af íslenzku vallarfoxgrasi, sem ræktað hefur verið í Noregi. F R E Y R 441

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.