Freyr - 01.11.1968, Page 27
hún bjargaði heyskapnum á víssum svæð-
um. Súgþurrkunarkerfi eru fjórfalt meiri
en s. 1. ár.
Sigfús ræddi um nauðsyn þess að skipu-
leggja betur landþurrkun, bæði með tilliti
til betri beitarnýtingar á landinu og svo
hins, að þurrkun landsins sé jafnan nægi-
lega langt á undan vinnslu þess. — Hann
skýrði einnig frá starfsemi búfjárræktar-
félaga á sínu svæði.
Þá gerði ráðunauturinn ítarlega grein
fyrir hinu nýja Ræktunarsambandi og
fyrirhugaðri sæðingu nautgripa og hefur
þeirra mála verið getið hér að framan.
Margt fleira kom fram í skýrslum ráðu-
nauta, sem hér er ekki rúm til að rekja. En
af ræðum þeirra og annarra fundarmanna
mátti greina mikinn vilja til enn aukins
samstarfs bænda og ráðunauta.
Meðal tillagna, sem samþykktar voru:
Kalskemmdir
„Þar sem kalskemmdir hafa enn á ný valdið
bændum stórtjóni víða um land og er nú
mesti skaðvaldur í íslenzkum landbúnaði,
vill aðalfundur B.S.A. 1968 ítreka sam-
þykktir síðasta aðalfundar um stórauknar
kalrannsóknir. Jafnframt skorar fundurinn
á Rannsóknarstofnun landbúnaðarins, að
hún láti þetta verkefni ganga fyrir öðrum
rannsóknarefnum“.
Hreindýr
„Aðalfundur B.S.A. samþykkir að beina því
til menntamálaráðuneytisins, að það láti
þegar á þessu sumri fækka hreindýrum
niður í 800—1000. Þessu til rökstuðnings
bendir fundurinn á eftirfarandi:
A. Þegar er sýnt, að gróðurfar beitulands-
ins þolir ekki þann dýrafjölda, sem nú er.
Og ástandið fer ört versnandi með kóln-
andi veðráttu.
B. Ágangur á ræktun og heimahaga fær-
ist mjög í vöxt og bændur eru ekki skyldir
að þola af því tjón bótalaust.
C. Mikið af því landi, sem dýrin eru nú
sem óðast að nema, er þeim óæskilegt og
hættulegt.
D. Vanzalaust er ekki að láta dýrin drep-
ast úr hor og harðrétti fyrir augum fólks á
þeim tíma sem áróður er hafður í frammi
um dýravernd og bætta fóðrun.“
Dýralæknisþjónusta
„1. Fundurinn lýsir ánægju sinni yfir því
að dýralæknisumdæmi Austurlands hefur
verið skipt og býður hinn nýja dýralækni,
Birni Bjarnason, velkominn til starfa á
sambandssvæðinu.
2. Fundurinn þakkar Jóni Péturssyni
ágætt starf og væntir þess að bændur fái
lengi að njóta starfskrafta hans.
3. Fundurinn beinir því til stjórnar B.S.A.
að hún vinni að því að dýralæknir verði
ráðinn sem fyrst í Norðurlandsumdæmið,
sem tveir nyrztu hreppar sambandssvæðis-
ins eru í.“
Forfallahjálp
„Aðalfundur Búnaðarsambands Austur-
lands 1968, felur stjórn sambandsins að at-
huga möguleika á að útvega fólk, sem jafn-
an væri tiltækt að taka að sér bústörf fyrir
þá sem vegna heilsubrests eða annarra or-
saka forfallast um stundarsakir.“
❖ * *
ítrekaðar voru fyrri samþykktir um raf-
magnsmál fjórðungsins, varðandi virkjun
Lagarfoss og dreifingu raforkunnar um
sveitirnar.
Skömmtun og skattlagning fóðurbætis
Stjórn Stéttarsambands bænda hafði sent
B.S.A. til umsagnar ályktanir aukafulltrúa-
fundar í vetur um þetta efni og lagði sam-
bandsstjórn málið fyrir aðalfundinn.
Miklar umræður urðu um þetta mál á
fundinum og komu fram ýmsar hugmyndir
um tilhögun skömmtunar og skattlagning-
F R E Y R
449