Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.11.1968, Qupperneq 21

Freyr - 01.11.1968, Qupperneq 21
tveimur árum hefur Vísindasjóður einnig veitt kr. 100.000.— hvert ár til kalrann- sókna. Sumarið 1967 var þessu fé varið á fernan hátt: 1) til þess að gefa yfirlitsskýrslu um allt kalsvæðið 2) til þess að athuga holurými kalins jarð- vegs 3) til þess að reyna að framleiða kal á grassverði í frystibökkum 4) til þess að fylgjast með ástandi gróðurs við skafl. Er nú verið að vinna úr niðurstöðum af þessum rannsóknum. Kal var nú enn í ár mjög tilfinnanlegt í ýmsum byggðarlögum einkum norðaustan- lands og vestan en einnig í ofanverðum Borgarfirði, Hrútafirði og í Laugardal. Starfsmenn Rannsóknarstofnunar land- búnaðarins hafa nú sem áður gert sitt til þess að athuga ástandið á kalsvæðunum til þess enn að reyna að kynnast orsökum þess og eðli, leita að leiðum til úrbóta svo og ráðstöfunum til endurvinnslu á hinu kalna landi. Til þessara rannsókna veitti Vísinda- sjóður enn á ný kr. 100.000,— sem gerði kleift, að Bjarni Guðleifsson landbúnaðar- kandidat gat tekið að sér víðtækar athug- anir á kalsvæðunum, einkum norðaustan- lands. Bjarni athugaði einn bæ í hverjum hreppi og valdi til þess jarðir með miklum nýræktunarframkvæmdum. Voru þessar jarðir notaðar sem mælikvarði á ástandið yfirleitt í viðkomandi hreppi. í Svalbarðshreppi, Þistilfirði og í Axar- fjarðarhreppi, N.-Þing. voru hinsvegar gerðar athuganir á hverjum bæ. Metið var heildarástand jarðarinnar og framkvæmt nákvæmt mat á túnum 6 ára og yngri. Jafnframt var tekið jarðvegssýni til at- hugunar og mælingar gerðar á holurými, kornadreifingu og efnasamsetningu jarð- vegs, en einnig tekin sýni af gróðri til svepparannsókna. Kalið í Svalbarðshreppi reyndist svó geigvænlegt, að um 72% af gróðurlendi túna í hreppnum virtist skemmt af kali en í Ax- arfirðinum var um 63% gróðurlendis túna kalið. Meðaltal á kali túna í Vestur-Húna- vatnssýslu var hins vegar áætlað um 30%, en um 18% í Austur-Húnavatnssýslu. Allsherjarráð til úrbóta eru ekki fyrir hendi og verða sennilega seint fundin, en ýmislegt má af niðurstöðum tilrauna og athuganna læra og er sjálfsagt að hver bóndi geri þær ráðstafanir, sem þurfa þyk- ir á hverjum stað. Kalið hefur verið rannsakað beint eða óbeint á undanförnum árum af jarðvegs- og jurtafræðingum svo og tilraunastjórum. Sérfræðingar Rannsóknarstofnunar land- búnaðarins munu nú sem fyrr reyna að glíma við lausn vandamálsins, leita að ein- hverjum leiðum til úrbóta, benda á ráð til þess að afla fóðurs eftir kalvetur, til dæmis með ræktun grænfóðurplantna, og finna með hvaða móti kalin jörð verður helzt endurræktuð. Ég tel þó, að enn megi taka fastar á rann- sóknum á kalinu. Vandamálið er svo margþætt, að hér þyrfti hópur sérfróðra manna að taka höndum saman til þess að kanna hinar ýmsu hliðar viðfangsefnisins. Hver smávægileg úrlausn hefur veigamikla þýðingu fyrir bændur og þjóðarbúið. IFAP NEWS segir frá því í ágúst s. 1. að fjárfjöldi í heiminum sé nú 1000 milljónir. S'auðfé fer fjölgandi, því hefur fjölgað um 1% frá síðasta ári og um það bil 3% árlega á árunum 1961—65. Ástralía, Nýja-Sjáland, Argentína og Uruguay eru fjárríkustu löndin og í vissum þeirra hefur til- hneiging til fækkunar verið á síðustu árum en þeim meiri fjölgun annarsstaðar. í Ástralíu eru 165 mill- jónir og á Nýja-Sjálandi 60 milljónir. í sumum löndum er áherzla lögð á ullarframleiðslu en það viðhorf hefur ekki verið hagstætt upp á síðkastið því að ull er í afar lágu verði á heimsmarkaði og laklegar tegundir ullar óseljanlegar, svo sem við íslendingar höfum komizt að raun um. F R E Y R 443

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.