Freyr - 01.11.1968, Blaðsíða 7
JÓNAS JÓNSSON:
Vögglar Hey Kögglar
Að undanförnu hefur ríkt mikill áhugi fyrir
verksmiðjuframleiðslu á hraðþurrkuðu
gæðafóðri úr íslenzku grasi og grænfóðri.
Benda má á eftirtalin höfuðmarkmið með
slíkri framleiðslu:
í fyrsta lagi gætu slíkar verksmiðjur
framleitt fyrir fóðurforðabúr, þar sem fóð-
ur yrði geymt frá góðum árum til slæmra,
og má benda á, að framleiðsla þeirra yrði
að því leyti vel fallin til slíks, þar sem hún
geymist vel, hefur lítið rými miðað við fóð-
urmagn og er þar með vel fallin til geymslu
og flutninga.
í öðru lagi, að með hraðþurrkun varð-
öllu ungviði eins og fullorðnum skepnum.
Eitt er að mæla fyrir, annað er að fram-
fylgja fyrirmœlum og áœtlunum.
Ekki mun þó fjarri lagi að ætla þurfi
vetrungnum 800 F.E. af heyi vetrarlangt,
en hvað um tryppin og folöldin?
Mismuninn á áætlaðri fóðurþörf og því
magni sem til er á haustnóttum, þarf auð-
vitað að útvega ef skapa skal öryggi um
nægilegt fóður hversu sem harðæri hrjáir.
G.
veitist fóðurgildi jurtanna vel og með henni
má fá fóður, sem að fóðurstyrkleika er á
mörkum kraftfóðurs og gróffóðurs, ef hrá-
efnið eru jurtir á réttu þroskastigi. Mætti
því með þessari framleiðslu spara innflutn-
ing á kjarnfóðri, sem annars verður ekki
komizt hjá að nota, ef kyngóðir gripir eiga
að skila fullum afurðum.
í þriðja lagi má hugsa sér, að með slíkum
verksmiðjum sé hagkvæmast að nota stór
og samfelld ræktunarlönd og miðla frá
þeim fóðri til sveita, þar sem ræktunarskil-
yrði eru minni en beitilönd góð.
í fjórða lagi má benda á að víða erlendis
og m. a. á Norðurlöndum, eru menn farnir
að gera sér vonir um það, að hraðþurrkun
og kögglun geti leyst af hólmi aðrar verkun-
araðferðir á gróffóðri, svo sem, útiþurrkun,
súgþurrkun og votheysverkun. Svíar
telja þannig, að vinnslukostnaðurinn við
hraðþurrkun og kögglun, fram yfir aðrar
fóðurverkunaraðferðir, þurfi nú ekki að
verða meiri en það, sem vinnst með minna
efnatapi og vinnusparnaði við fóðrun með
kögglum. Mikill áhugi ríkir hvarvetna fyrir
þessu, því er skjótra tækniframfara að
F R E Y R
429