Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.1968, Blaðsíða 9

Freyr - 01.11.1968, Blaðsíða 9
Danir eru lengst komnir af Norðurlanda- þjóðunum í 'þessum efnum. Þar hefur tala þurrkstöðva aukizt úr 19 árið 1961 í 39 ár- ið 1966. Fjöldi þurrkara hefur þó aukizt enn meira og meðalafköst þeirra tvöfaldast eða aukizt úr 2,2 — 6,6 smálestir vatns á klst. Afkastageta þurrkara er mæld með því að kanna hve mikið vatn þeir geta eimað úr hráefninu á klukkustund. Minnstu verk- smiðjurnar afkasta um 2000 1 (eða 2 smá- lestum), en þær stærstu 20000 eða 20 smá- lestum vatns á klst. Flestar eru verksmiðj- urnar í Danmörku reknar af samvinnufé- lögum þeirra bænda, sem framleiða hrá- efnið. Mjög mikið af framleiðslunni hefur að þessu verið úr lúsernum en nú er meira og meira notað rýgresi. í verksmiðjum, sem reistar hafa verið eftir 1960 hefur verið framleitt æ meir af vögglum, en minna af mjöli. Með vögglagerðinni eykst rúmþyngd- in, sem fyrr segir, mjög mikið sparast því í flutningi og geymslu af þeim sökum, auk þess sem hægt er að geyma og flytja köggla lausa. í Svíþjóð ríkir einnig mikill áhugi fyrir því að taka upp hraðþurrkun og reyna hana sem geymsluaðferð á gróffóðri, m. a. til þess að geta komið við sjálfvirkri fóðrun t. d. nautgripa. Búnaðarsamband eitt í Sví- þjóð hóf tilraunabúskap með þessu sniði árið 1965. Þar var notuð vögglapressa, sem breytt var þannig, að hægt var að láta hana pressa köggla úr stubbuðu grasi og var þetta síðan notað sem eina gróffóðrið handa kúnum á búinu. Á fyrsta ári fékkst svo góð reynsla, að fleiri fóru af stað og nokkrar nýjar stöðvar tóku til starfa sumarið 1966. Framleiðslukostnaðurinn við hraðþurrk- un reyndist ekki meiri fram yfir eldri að- ferðir en svo, að það þótti vinnast upp með vinnusparnaði við fóðrun og minna efnatapi. í Noregi ríkir einnig mikill áhugi á þess- um málum, og hafa farið fram miklar um- ræður um það, að bændur, sem hafa kúa- búskap, myndi samvinnufélög um verk- smiðjur, sem breyti grasi af túnum þeirra í köggla er verði síðan fluttir heim til þeirra F R E Y R aftur. Bútæknideildin við Landbúnaðarhá- skólann hefur gert margháttaðar rannsókn- ir og kostnaðaráætlanir fyrir slíkar stöðvar í Noregi. Þær verða síðar hér í greininni bornar saman við reynslu Dana og þá litlu reynslu, sem við höfum aflað okkur hér á landi. Hérlend framleiðsla. Klemenz Kr. Kristjánsson, tilraunastjóri á Sámsstöðum, hóf fyrstur grasmjölsgerð hér á landi í tilraunaskyni árið 1948. Það var olíukynntur þurrkari innbyggður í hey- vagn og mylla, sem malað gat hraðþurrkað gras. Næstu 12 árin var framleitt heymjöl á Sámsstöðum, mest um 30 tonn á ári. Haustið 1959 hóf Samband íslenzkra sam- vinnufélaga undirbúning að stofnun gras- mjölsverksmiðju hjá Hvolsvelli og nefndi búið Stórólfsvöll. Þar var fyrst komið upp einum færibandsþurrkara, sem hefur ca. 1 smálestar þurrkgetu á klst. Síðar var bætt við sívalningsþurrkara af „Heil“ gerð, sams konar og mest tíðkast nú erlendis. Þurrk- unargeta hans er sögð 2,25 smálestir vatns á klst. Um svipað leyti og hafizt var handa á Stórólfsvelli, var ákveðið af hálfu ríkisins að koma upp fóðurframleiðslu í Gunnars- holti á Rangárvöllum og hlaut sú stofnun nafnið „Fóður og fræframleiðslan Gunn- arsholti“. Sumarið 1960 var á vegum henn- ar hafin kornrækt í allstórum stíl og kom- ið upp húsum og tækjum til þess að nýta kornið. Grasmjöls- og vögglaframleiðsla hófst þar fyrst 1964. Kornræktin í Gunnarsholti hefur verið rekin samhliða grasmjöls- og vögglagerð- inni, stundum hefur korn, sem sáð var og ætlað til þroskunar, verið tekið sem græn- fóður í hraðþurrkun, þegar séð þótti, að það mundi ekki ná þroska í hinum köldu sumr- um, sem að undanförnu hafa komið. í Gunnarsholti er einn sívalningsþurrkari af sömu gerð og nýrri þurrkarinn á Stór- ólfsvelli. í beinu framhaldi af honum er 431 l

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.