Freyr - 01.11.1968, Side 35
Greinargerð
yfirneffndar
sbr. 6. gr. laga nr. 101/1966 um ákvörðun verðlagsgrundv. landbúnaðarvara.
Á fundi í Sexmannanefnd þann 4. sept. s. 1.
var ákveðið að undangenginni sáttatilraun
Sáttasemjara ríkisins að skjóta til yfir-
nefndar skv. 6. gr. laga nr. 101/1966 ágrein-
ingi í nefndinni um ákvörðun verðlags-
grundvallar fyrir landbúnaðarvörur fyrir
framleiðsluárin 1968/1969 og 1969/1970.
Skotið var til yfirnefndar að úrskurða:
1. Alla gjaldaliði verðlagsgrundvallar.
2. Bústærð og afurðamagn.
3. Verð á ull og gærum.
í yfirnefndina tilnefndu fulltrúar fram-
leiðenda Inga Tryggvason, bónda Kárhóli,
en fulltrúar neytenda notuðu ekki rétt sinn
til tilnefningar og skipaði því félagsmála-
ráðherra, skv. 6. gr. laga nr. 101/1966, mann
í nefndina, sem er Jón Þorsteinsson, al-
þingism. Oddamaður er Guðmundur
Skaftason, lögfræðingur og löggiltur endur-
skoðandi tilnefndur af Hæstarétti, en í
Sexmannanefnd hafði ekki orðið samkomu-
lag um val oddamanns.
Umboðsmenn aðila hjá yfirnefndinni eru
þeir Gunnar Guðbjartsson vegna framleið-
enda og Ottó Schopka vegna neytenda.
Á fundi yfirnefndar þann 16. sept. s.l.
lögðu umboðsmenn aðila fram tillögur sín-
ar til verðlagsgrundvallar ásamt greinar-
gerðum og gögnum, sem þeir óskuðu eftir
að koma að í málinu.
Af hálfu neytenda var lögð fram sú aðal-
tillaga, að yfirnefndin ákvarði verðlags-
grundvöll landbúnaðarafurða í samræmi
við það samkomulag, sem fulltrúar fram-
leiðenda og neytenda gerðu með sér í sept-
ember 1966 og notað var sem grundvöllur
við verðlagningu framleiðsluárið 1966/1967.
Við útreikning á verðlagi yrði stuðst við
framreikningsreglur frá 4. 7. 1960. Enn-
fremur að áætlað verð á ull og gærum yrði
í samræmi við væntanlegt útflutningsverð
og allar búgreinar látnar taka sömu hlut-
fallslegu hækkun.
Til vara lögðu þeir fram þá tillögu, að
verðlagsgrundvöllurinn yrði ákveðinn á
grundvelli “400 ærgilda bús“ þar sem ein-
göngu væri tekið tillit til kostnaðar og
tekna vegna nautgripa og sauðfjár. Lögðu
þeir fram tillögu um uppstillingu á verð-
lagsgrundvelli byggða á slíku búi.
í þessari tillögu fulltrúa neytenda er gert
ráð fyrir bústærð, sem samanstendur af 10
kúm, 3,5 geldneytum og kálfum og 180 fjár.
Afurðamagnið er tilfært 29.500 lítrar mjólk-
ur, 501 kg. nautgripakjöt, 2754 kg. kinda-
kjöt, 551 kg. gærur, 325 kg. ull og 180 slátur.
Fulltrúar framleiðenda leggja til, að í
verðlagsgrundvellinum verði miðað við
„400 ærgilda“ bústærð og sleppt verði öll-
um aukabúgreinum öðrum en garðrækt til
heimilisnota og ennfremur, a sleppt verði
öllum vinnutekjum utan heimilis. Þeir
leggja til að nautgripaafurðir verði ákveðn-
ar þannig: Mjólk 26.550 ltr., nautkjöt 420
kg. og húðir á 430 kr. Sauðfjárafurðir verði
ákveðnar 3060 kg. kjöt, 612 kg. gærur, 340
kg. ull og 200 slátur. Þá leggja þeir til að
F R E Y R
457