Freyr - 01.08.1975, Síða 6
brögS til aS forða landbúnaðinum og þjóð-
inni frá því tjóni, sem hún verður fyrir þeg-
ar óþurrkasumrin koma. — Reynslan sýnir
að þau koma alltaf af og til, aðeins með
mislöngu millibili, og misslæm.
Með markvissum leiðbeiningum og með
því að beina þannig lánum og framlögum
mætti örugglega auka öryggið í fóðurverk-
uninni.
* * *
Grein Helga Hallgrímssonar er athyglisverð
fyrir bændur. All mikill áróður hefur verið
hafður uppi gegn framræslu lands og hafa
margir farið þar offari.
Náttúruverndarmenn hafa réttilega bent
á að varast ber að ræsa fram allt votlendi
hollt og bolt. Það hefur hins vegar á það
skort að þeir gætu bent á þau svæði, sem
mest gildi hafa og helst ber að varðveita.
Úr þessu hefur nú verið bætt með gerð
„votlendis skrár“. Líklegt er að góð sam-
vinna geti nú tekist á milli viðkomandi
bænda og náttúruverndarmanna.
Leiðrétting...
Eftirfarandi ábending varðandi texta undir
forsíðumynd á næst síðasta blaði barst frá
Kristni Sigmundssyni, Arnarhóli Kaupangs-
sveit. Myndin er eins og Kristinn bendir á
af bæjum í Kaupangssveit en á henni sér
yfir land Staðarbyggðar, en þessir sveitar-
hlutar eru í Öngulstaðahreppi. Kristni
þakka ég fyrir ábendinguna. — Ritstj.
Arnarhóli 18/7 ’75.
Hr. ritstjóri,
Mér varð rétt í þessu litið á forsíðumynd
Freys, nr. 11—12. Hún er ekki úr Staðar-
byggð, svo sem undir henni stendur, held-
ur suðurhluta Kaupangssveitar. Staðar-
byggð heitir á milli Þverár ytri og syðri.
Bærinn næst veginum er Ytri-Hóll I., en
lengra frá Ytri-Hóll II. til vinstri, Syðri-Hóll
til hægri, og Garðsá í minni Garðsárdals í
baksýn.
Með bestu kveðju,
Kristinn Sigmundsson.
Tilkynning frá stofnlánadeild landbúnaöarins
Umsóknir um lán vegna framkvæmda á árinu 1976 skulu hafa borist Stofn-
lánadeild landbúnaðarins fyrir 15. september næstkomandi.
Umsókn skal fylgja teikning og nákvæm lýsing á framkvæmdinni, þar
sem meðal annars er tilgreind stærð og byggingarefni.
Ennfremur skal fylgja umsögn héraðsráðunaptar, skýrsla um burekstur
og framkvæmdaþörf, svo og veðbókarvottorð.
Eldri umsóknir falla úr gildi 15. september næstkomandi, hafi deildinni
eigi borist skrifleg beiðni um endurnýjun.
^ÉbCNAÐARBANKI Reykjavík, 20. ágúsl 1975.
\£\ J ÍSLANDS Stofnlánadeild landbúnaðarins.
302
F R E Y R