Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.08.1975, Qupperneq 7

Freyr - 01.08.1975, Qupperneq 7
GÍSLI KRISTJÁNSSON: Búfé og fúður 1972-74 Meginforsenda þess, að bændur geti nýtt arfgenga eiginleika búfjárins, er að það sé fóðrað á öllum tímum svo sem framleiðslu- geta þess leyfir. Enn eru til raddir sem segja: „Það er engin furða þó að kýrin mjólki eins og henni er gefið. Hún þarf fóðrið sitt“. Yirki- lega er það svo, að enn er til fólk, sem ekki veit, eða vill ekki vita, að framleiðsla getur ekki orðið til af engu. Það er hlutverk búfjár okkar að breyta í afurðir því grasi, sem á jörðinni grær, og öðrum þeim jurt- um, sem þar vaxa og ekki verða notaðar til manneldis, en þurfa að fara um melting- arvegu skepnanna og taka efnaskiptum til þess að verða að kjöti og mjólk, smjöri og skinni og ull og hvað það nú heitir og allt það, sem nýtt er og nytjað af skepnunni. Til þess að eiga nægan forða vetrarlangt er grasi safnað að sumri, það verkað sem þurrhey eða vothey, helst hvorutveggja og að vetri sótt daglega í hlöðurnar og flutt á jöturnar. í hlöðunum er fóðrið mælt og metið á hverju hausti samkvæmt lögum um þau efni, búfjárrœktarlögunum. Mál þess og mat er framkvæmt af þar til völdum mönn- um, forðagœslumönnum, sem kjörnir eru af sveitarstjórnum og er þar um trúnaðar- starf að ræða, sem raunar er traustur horn- steinn í hagrænum árangri búskapar hvers einasta bónda. Þar þarf að vera samvinna forðagæslumannsins og bóndans um að á- kvarða gildi og magn þess fóðurs, sem mælt er og metið og nægja skal til vetrar- forða. ❖ ❖ * Allir vita og þekkja, að árferðið hefur mjög mikil áhrif á fóðurþörf og fóðurnotkun. Hið góða sumar, sem hófst í apríl 1974, hafði í för með sér ágætan gróður í maí, en hann sparaði húsvist og innifóðrun allra skepna og af því leiddi að fyrningar heyja urðu meiri en líklega hefur skeð nokkru sinni í sögu þjóðarinnar. Þetta kom í góðar þarfir á síðasta vetri (1974—-75) þar eð innistaða búfjár varð lengri en venjulega og fóðureyðsla eftir því svo að mjög gekk á allar birgðir á nýliðnu vori. Af skýrslunni, sem hérmeð fylgir yfir búfé og fóðuröflun, samkvæmt talningu og mælingu um síðastliðin áramót, má sjá, að aukning bústofns hefur verið nokkur frá fyrra ári, einkum fjölgaði sauðfé og hross- um, en nautpeningi fækkaði lítilsháttar. Tölurnar í töflunni sýna, að sauðfjárfjölg- unin nam um 17.000 og hrossum fjölgaði um meira en 3000 frá fyrra ári, en naut- peningi fækkaði um nálægt 800 og var þar aðeins um að ræða fækkun ungviðis. En svo voru það birgðirnar. Það er gott 303 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.