Freyr

Årgang

Freyr - 01.08.1975, Side 8

Freyr - 01.08.1975, Side 8
að eiga fóðurforða afgangs frá hagstæðum árum. Það hefur alla tíð reynst svo, allt frá dögum Egypta. Mögru kýrnar hafa það til að gleypa þær feitu. Meginþorri fyrn- inganna hefur eyðst á liðnum vetri. Magn aflaðra heyja var, samkvæmt mæl- ingu, 3,43 milljónir m;l 1973 en 3,31 milljón m3 sumarið 1974 og er þá miðað við þurra töðu. Um útheysöflun er að segja, að hún er því nær engin orðin og réttast að telja hana ekki oftar sér á skýrslum, þar sem aðeins er um að ræða brot úr % af saman- lögðum fóðurfeng. Og svo er það votheyið, sem einnig var verkað í minni mæli en flest ár eða öll að undanförnu. Því réði vafalaust hin ágæta heyskaparveðrátta, sem ríkti um megin- hluta landsins lengst af um sláttinn. Hey- þurrkun gekk með ágætum víðast og löng- um svo, að bændur hafa tjáð, að þeir minn- ist varla jafn hagstæðs veðurfars til hey- þurrkunar. Það hafði svo í för með sér góð og ágæt hey, sem að fóðurgildi voru víðast óvenjuleg. Af fóðurgildisrannsóknum, sem gerðar voru, sýndi það sig, að meðaltaða ársins var svo góð að ekki þurfti nema 1,7 —1,8 kg í hverja fóðureiningu, en meðal- talið höfum við jafnan talið um 2 kg. (Sam- kvæmt efnagreiningum hefur að meðaltali þurft 1,9 kg í FE). Til voru dæmi þess, að fóðurgildið var svo mikið, að aðeins þurfti 1,4 kg í einingu. Af þessum tölum og svo þeim, sem sýndu magn heyja í m3, mátti ráða, að hver m3 í hlöðu væri allt að 10% næringarauðugri en í meðalári, en samanlagður virtist fóður- fengurinn um það bil 4% minni að rúm- metratölu en árið 1973. Mismunurinn ætti því að gefa til kynna meira fóðurgildi en fyrr, en vera má að þungi í hverjum m3 í hlöðu hafi verið ofmetinn vegna þess að heyið hafi verið laust, á því eru nokkrar líkur þegar verkun þurrheysins er sérlega góð eins og víðast var sumarið 1974. En að öllu samanlögðu er það víst, að í hlöðum og stökkum hefur gildi fóðuraflans 1974 num- ið yfir 200 milljónum FE, þar af þurrhey um 198 milljónum FE, og votheyið nálægt 14 milljónum FE. Samkvæmt þessu hefur votheysgerðin verið aðeins um 7% af sam- anlögðu fóðurmagni verið verkað sem vot- hey. HjörS af Gallowaykyni. — Úr heimkynnum kynsins í hæ3um suívestur Skotlands. — Myndin var tekin þegar verið var að velja naut vegna fyrirhugaðs innflutnings. 304 F R E Y R

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.