Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.08.1975, Qupperneq 25

Freyr - 01.08.1975, Qupperneq 25
Fergin í skurði við Hvamm í Hrafna- gilshreppi. B-flokkur. Votlendis- skrár. í B-flokki votlendisskrárinnar eru svæði, sem einnig hafa mikla þýð- ingu, en talið er þó, að eigi sér hliðstæður hérlendis. Gildi þeirra er því einkum á mælikvarða landshluta eða héraða. Við nánari könnun mun þó ef til vill koma í Ijós, að gildi þeirra er meira en nú er áætlað, svo sum þeirra ættu réttar heima í A-flokki. í þessum flokki eru einnig 28 svæði, flest á Suðvesturlandi og Mið- norðurlandi. Svæðin eru þessi (sþr. meðf. kort). 1. Leirárvogur (Grunnafjörður) í Borgarfjarðarsýslu. (Grunnsævi og fjörur). 2. Fiskilækjarvatn o. fl. vötn og mýrar í Melasveit í Borgarfirði. 3. Reykjadalsá í Reykholtsdal, Borg. 4. Mýrlendi við Lýsuhól í Staðarsveit á Snæfellsnesi. 5. Borgarland, þ. e. nesið milli Berufjarðar og Króksfjarðar í Austur- Barðastrandarsýslu. 6. Eylendið í Austur-Húnavatnssýslu. (Flæðiengi). 7. Austara-Eylendið í Skagafirði. (Flæðilönd, vötn, lón, bakkar, hólmar). 8. Hófsvatn—Flókadalsvatn í Fljótum, Skagafjarðarsýslu. (Stöðuvötn og mýrar). 9. Hrísey í Eyjafirði. (Mýrar, fjörur o. fl.). 10. Óshólmar Hörgár í Eyjafirði. (Bakkar, hólmar, leirur, lón). 11. Lónin í Höfðahverfi við Eyjafjörð. (Flæður, hólmar, tjarnir). 12. Flæðiengjar í utanverðum Hvalvatnsfirði, S-Þing. 13. Norðausturhorn Melrakkasléttu. (Lón, vötn, mýrar, fjörur). 14. Skarðsfjörður í A-Skaft. (Leirur, lón, mýrar, fitjar). 15. Hólmar og flæður við ós Grenslækjar í Landbroti, V-Skaft. 16. Votlendisræma, syðst í Austur-Landeyjum, Rang. 17. Sauðholtsnes í Ásahreppi, Rangárvallasýslu. (Mýrar og bakkar). 18. Höfðaflatir, vestan Vörðufells á Skeiðum, Árnessýslu. (Mýrlendi, dý). 19. Laugarvatn og nágrenni í Árnessýslu. 20. Neðra-Sog, þ. e. hluti Sogs og Álftavatn í Árnessýslu. 21. Straumsvík við Hafnarfjörð, sá hluti sem enn er óskemmdur. F R E Y R 321

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.