Freyr

Årgang

Freyr - 01.08.1975, Side 28

Freyr - 01.08.1975, Side 28
15 | mmmm 4* ' - ——il ~| - 1 11 || 1 :: ''"1 '""" '". : I! ip 1 p ^ j 4 M Mynd þessi er tekin af heyvagni sem keyptur var til reynslu a3 Gunnarsholti á s. 1. sumri. Vagninn þjappar heyinu saman og skilur við það upp borið í fúlgu. Slíkir vagnar ryðja sér nokkuð til rúms erlendis, þar sem ekki tíðkast að hafa hlöður yfir heyforðann. — Þar ryðja stóru baggarnir venjulegri vélbindingu einnig frá og þykir mikils um vert að spara bindigarnið. Hkki skal neitt um það spáð hvort þessar að- ferðir henta hér. mýrar snertir, þá eru þær í flestum tilfellum óræktanlegar en hafa hins vegar mikið gildi til vatnsmiðlunar í lækjum og ám. Framræslu þeirra fylgir og mun meiri hætta á vatnsrofi og uppblæstri en í mýrum lág- lendisins. Um flæðimýrar var áður rætt. Að lokum er bent á nauðsyn þess, að gert verði visst úrval úr nýtan- legum láglendismýrum, sem friðlýstar yrðu til að varðveita dæmi um viðkomandi gróður, dýralíf o. s. frv. Er þetta mjög brýnt verkefni, því að víða eru síðustu forvöð að bjarga slíkum leifum, og er líklega sums staðar orðið of seint. Bent er á, að slík verndarsvæði hafi einnig þýð- ingu fyrir rannsóknir og kennslu, og gildir það einkum í nágrenni skóla og skólabæja. Sú skoðun hefur verið ríkjandi meðal íslenskra bænda og búfrömuða, að framræsla mýrlendis væri í öllum tilfellum til bóta og því sjálfsagt að ræsa sem allra mest af mýrum landsins. Nú orðið viðurkenna víst flestir, að þetta er fljótfærnisleg skoðun, og að í vissum tilfellum á fram- ræsla mýra mjög takmarkaðan rétt á sér og getur jafnvel verið þýð- ingarlaus eða skaðleg, ef á heildina er litið. Hitt er svo jafn rétt, að nútíma búskapur á íslandi er óhugsandi án þeirrar framræslu, sem þegar hefur verið gerð og verður gerð á næstu árum. Spurningin er ekki, hvort við eigum að hætta framræslu mýra eða halda henni áfram heldur hvernig skuli að henni staðið, hvað skuli ræst og hvað ekki, og þá með hvaða aðferðum. 324 F R E Y R

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.