Freyr - 01.07.1976, Síða 5
FREYR
BÚNAÐARBLAÐ
72. árgangur
nr. 13—14, júlí 1976
Útgefendur:
BÚNAÐARFÉLAG [SLANDS
STÉTTARSAMBAND BÆNDA
Útgáfustjórn:
EINAR ÓLAFSSON
HALLDÓR PÁLSSON
ÓLI VALUR HANSSON
Ritstjóri:
JÓNASJÓNSSON
Heimilisfang:
BÆNDAHÖLLIN, REYKJAVÍK
PÓSTHÓLF 7080, REYKJAVlK
Áskriftarverð kr. 1000
árgangurinn
Ritstjórn, innheimta, afgreiðsla og
auglýsingar:
Bændahöllinni, Reykjavík, sími 19200
Ríkisprentsmiðjan Gutenberg
Reykjavík — Sími 38740
EFNI:
Jarðalög
Töðufall á Islandi frá aldamótum
Meginstoð iðnaðar er hráefni
landbúnaðarins
Ofurlítið um vírussjúkdóma
í gróðri
„Oft er það gott, sem gamlir
kveða“
Minning
Bréf frá bændum
Verjið kálfana gegn garnaveiki
og meltingartruflunum
Jarðalög
Á síðasta þingi voru gerðar margar breytingar á land-
búnaðarlöggjöfinni.
Eftirtalin lög eða breytingar á lögum, er varða land-
búnaðinn sérstaklega, voru samþykktar: Lög um afrétt-
armálefni og fjallskil, lög um Framleiðsluráð landbún-
aðarins o.fl., lög um flokkun og mat ullar, lög um flokkun
og mat á gærum, (hvort tveggja ný lög), lög um Búnað-
arbanka íslands, ábúðarlög og jarðalög.
★
Merkustu nýmælin I þessu eru jarðalögin. Sérstök á-
stæða er til þess, að bændur kynni sér þau vel. Með
þeim er gerð ákveðin tilraun til að láta löggjöfina varð-
veita búnaðarlandið. Orð þessi eru rituð til að vekja
athygli á lögunum en eru ekki viðhlýtandi kynning.
Síðar verður þeim komið betur á framfæri.
★
í fyrstu grein laganna segir: „Tilgangur laga þessara er
að tryggja, að nýting lands utan skipulagðra þéttbýlis-
svæða sé eðlileg og hagkvæm frá þjóðhagslegu sjónar-
miði og að eignarráð á landi og búseta á jörðum sé í
samræmi við hagsmuni sveitarfélaga og þeirra, sem
landbúnað stunda“.
Lögin ná til hvers konar lands og hvers konar lands-
nytja utan þéttbýlissvæða, sem hafa verið skipulögð
fyrir fasta búsetu manna, sem ekki hafa landbúnað að
aðalatvinnu.
Framkvæmd laganna varðandi sölu á einstökum jörð-
um eða jarðarhlutum eða aðra ráðstöfun jarða, hvílir á
sveitarstórnum í viðkomandi sveitum. Þeim til aðstoðar
eru jarðanefndir, sem starfa eiga I hverri sýslu. Jarða-
nefndir eru skipaðar þremur mönnum og velur búnaðar-
samband héraðsins tvo þeirra en sýslunefnd einn, eins
er um varamenn.
★
Jarðanefndirnar eiga m.a. að fylgjast með öllum eigenda-
skiptum og hvers konar ráðstöfunum fasteigna, fylgjast
með því, að sveitarstjórnir gæti lagaákvæða um mann-
virkjagerð I sveitum og um töku jarðefna og stuðla að
góðri umgengni um land og mannvirki. Þær eiga að
Framh. á bls. 280.
F R E Y R
249