Freyr

Årgang

Freyr - 01.10.1978, Side 6

Freyr - 01.10.1978, Side 6
framkvæmdir að miklu leyti afskrifaðar, geta hæglega dregið úr framleiðslu sinni og umsvifum. Þeir eiga að leita að leiðum til að draga úr tilkostnaði við framleiðsluna, leiðum til hagræðingar og geta eflaust fundið þær. Þannig þarf hagur þeirra alls ekki að versna. ☆ Ekki er nokkur vafi á því að fjölmörg bú eru rekin með meiri aðkeyptum föngum, t.d. fóðurbæti, og jafnvel áburði og olíunotkun en vera þyrfti, ef meiri áhersla væri lögð á að afla betra heimafengins fóðurs og á betri meðferð þess. Það er beinlínis skylda hvers „stórframleiðanda“ að líta í eigin barm — athuga hvort hann getur ekki dreg- ið úr framleiðslu sinni með skynsamlegum ráðum. Það er nú einu sinni fyrst og fremst framleiðsla stóru búanna, sem hefur yfirfyllt markaðinn svo að erfiðleikum veldur — þannig verða menn að líta á hlutina ef menn vilja sýna félagsþroska og virða velferð stéttarinnar í heild nokkurs. ☆ Ekki má þó líta á samdrátt framleiðslunnar sem einu leiðina til úrbóta. Erfiðleikarnir eru til að sigrast á þeim. Þegar að sverfur leita menn fastar að leiðum til úrbóta og oft finnast þær þá fyrst. Nú er full ástæða til að gera allt, sem hægt er til að leita betri markaða erlendis fyrir vörur okkar, og ekki síst leiða til að bjóða þær til sölu á fjöl- breyttari hátt en gert hefur verið hingað til. Þá er heldur ekki vonlaust, að hægt sé að brjótast að einhverju leyti í gegnum múra verndartolla, sem eru á þessum vör- um. írum hefur tekist að fá felldan niður 50% verndartoll, sem lagður er á dilkakjöt í Frakklandi. Ef okkur tækist það, fengjum við þar viðunandi verð. En verð á dilkakjöti 690 mun óvíða hærra en í Frakklandi, og þar er kindakjöt í hávegum haft. Þá er full ástæða til að gera mikið meira fyrir innlenda markaðinn en hingað til. Það þarf að kynna mikið meira vörur landbún- aðarins og það á fjölbreyttan hátt. Það þarf að kenna fólki hvernig á að fara með þær, bæði í geymslu, verkun og matreiðslu. Með- ferð og matreiðsla getur ráðið þarna ótrú- lega miklu um það hvernig fólki líka vör- urnar. Þannig þyrfti t.d. að kenna fólki að verulegu leyti að fara með og matreiða dilkakjötið á þann hátt, að fitan, sem á því er og þarf að vera, angri það ekki. ☆ Á sama hátt mætti mikið bæta verslunar- hættina, t.d. með því að bjóða vörurnar fram á markaði, kjötmarkaði, sláturmarkaði, grænmetismarkaði, á vissum tímum árs. Á slíkum mörkuðum mætti einnig koma við margháttaðri fræðslu og kynningu eins og að framan er vikið að. Þeir yrðu líka kjörið tækifæri til meiri auglýsinga, á viðkomandi vörum. Nú síðastliðið ár hefur að vísu verið unnið merkt starf af markaðsnefnd. Hún hefur gert marga athyglisverða hluti, en betur má ef duga skal og til þessara mála þyrfti að verja mikið meiri fjármunum en hingað til hefur verið gert. Markaðsnefndin hefur t.d. ekkert getað gert fyrir innanlands- markaðinn, en þar er auðvitað til mjög mikils að vinna. Mjólk og mjólkurvörur eru þó þarna nokkur undantekning, þar sem „Mjólkur- dagsnefnd“ hefur unnið talsvert kynningar- starf, en þar mætti einnig meira að vinna. F R E Y R

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.