Freyr - 01.10.1978, Blaðsíða 7
Dr. ÓLAFUR R. DÝRMUNDSSON,
landnýtingarráðunautur:
Könnun á skiptingu saufifjár
og hrossa milli heimalanda
og afrétta
í áliti Landnýtingar- og landgræðslunefndar, sem birtist árið 1974 í ritinu
„Landgræðsluáætlun 1974—1978“, er þess getið, að nefndin hafi m.a. leitað
upplýsinga um, hve stór hluti búfjár landsmanna gangi í heimalöndum
annars vegar og á afréttum hins vegar. Þótt nefndinni hafi borist mjög
gagnleg svör við þessari spurningu víða af landinu, skorti verulega á, að
heildaryfirlit fengist. Skömmu eftir að ég hóf störf sem Iandnýtingarráðu-
nautur Búnaðarfélags íslands sl. sumar, lagði ég drög að slíkri könnun í
öllum sveitarfélögum landsins. Könnuninni er nú lokið, og eru hér dregnar
saman helstu niðurstöður hennar.
Framkvæmd könnunar.
í nóvember 1977 voru send út spurninga-
blöð til forráðamanna allra sveitarfélaga í
landinu. Svör voru að berast fram á sumar,
í flestum tilvikum bréflega beint frá við-
komandi sveitarfélögum, en héraðsráðu-
nautar aðstoðuðu við útvegun upplýsinga
úr fáeinum þeirra. Ég nota hér tækifærið til
að þakka öllum, sem hlut áttu að máli,
fyrir ágæta fyrirgreiðslu, en tekist hefur að
safna ofangreindum upplýsingum af öllu
landinu (kaupstaðir meðtaldir), svo sem að
var stefnt við upphaf könnunarinnar. Fyrst
og fremst er um að ræða upplýsingar um
áætlaðan fjölda sauðjjár og hrossa í heima-
löndum annars vegar og á afréttum hins
vegar yfir sumarmánuðina. Það skal haft í
huga, að hreindýrabeit er töluvert mikil
víða á Austurlandi, bæði í heimalöndum og
afréttum. í örfáum tilvikum ganga naut-
gripir (geldneyti) í afréttum, en þær fáu
geitur, sem í landinu eru, ganga flestar í
heimalöndum. Ljóst er, að slíkar upplýs-
ingar geta ekki talist nákvæmar nema í
sumum tilvikum. Oftast er um áætlaðar
tölur að ræða, eftir því sem næst verður
komist með hjálp þeirrar staðgóðu þekk-
ingar, sem fyrir hendi er innan hvers sveit-
arfélags um þessi mál. Það skal tekið fram,
að við skipulagningu beitarmála í einstök-
um sveitum, hvort sem er við ítölugerð eða
aðrar aðgerðir, þarf að afla ítarlegri upp-
lýsinga í hverju tilviki en hér hefur verið
unnt.
Auk tölulegra gagna er í svörunum að
691
F R E Y R