Freyr - 01.10.1978, Side 8
Auðkúlurétt í Svínadal,
A.-Hún. Ljósm. J.J.
finna margvíslegan fróðleik um afrétti og
afréttarmál víða um land. Einnig er fjallað
um vetrarbeit sauðfjár og hrossa í hinum
ýmsu sveitarfélögum, en ég mun greina
síðar frá þeim þætti könnunarinnar hér í
blaðinu.
Margt sauðfé í heimalöndum allt sumarið.
Fjölmörg sveitarfélög í landinu eiga ekki
upprekstur í eiginlega afrétti. í sumum til-
vikum eru þá lönd eyðijarða eða hlutar
heimalanda byggðra jarða notaðir til sam-
eiginlegrar sumarbeitar. Víða eru aðstæður
á þann veg, að fé kemst óhindrað á milli
heimalanda og afrétta, og er þá ógerlegt að
fá nákvæmar upplýsingar um dreifinguna.
Reyndar er mjög algengt, að heimalönd séu
ekki afgirt nema þá að hluta næst bæjum.
Auk upplýsinga um, hvaða sameiginleg
sumarbeitilönd eru nytjuð í hinum ýmsu
sveitarfélögum, er í flestum svörunum
greint frá, hversu langur beitartíminn er.
Þar kemur fram, að sé greið leið milli
heimalanda og afrétta eða annarra sameig-
inlegra sumarbeitilanda, fer féð gjarnan
sjálft, þegar líður á júní. Þar sem féð er
flutt eða rekið, er það venjulega ekki gert
fyrr en rúningi er lokið, þ.e.a.s. seint í júní
og fram undir miðjan júlí. Oft er vetrarrúið
fé látið fara fyrst.
Þegar líður á ágúst, fer fé að leita til
byggða, en þetta er þó mjög breytilegt eftir
tíðarfari. Sé greið leið er víða margt komið
aftur í heimalönd seint í ágúst eða byrjun
september, og í nokkrum sveitum tíðkast
að setja þá féð á ræktað land. í sumum til-
vikum er smalað frá afréttargirðingum og
það fé réttað um þetta leyti, en um og upp
úr miðjum september eru lögboðnar réttir
um land allt. í mörgum sveitum hefur göng-
um og réttum verið flýtt nokkuð frá því
sem áður var.
Ofangreindar upplýsingar gefa til kynna,
að beitartími í afréttum sé nú í flestum
tilvikum 60—90 dagar, algengast 70—80
dagar, en fjöldi beitarfénaðar á því tímabili
getur verið nokkuð breytilegur (flest um
mitt sumar). Á nokkrum afréttum er beit-
artíminn þó lengri en að ofan greinir, eink-
um þar, sem ekki eru glögg skil á milli
heimalanda og afrétta. í heild hefur beitar-
692
F R E Y R